Fundargerðir

Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarráð Hornafjarðar - 1205

Haldinn í ráðhúsi,
20.01.2026 og hófst hann kl. 10:00
Fundinn sátu: Eyrún Fríða Árnadóttir formaður,
Gauti Árnason varaformaður,
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður,
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri, Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs, Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi.
Fundargerð ritaði: Arndís Lára Kolbrúnardóttir, stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi


Dagskrá: 
Fundargerðir til staðfestingar
9. 202402127 - Íþróttahús - hönnun
Fundargerð stýrihóps um nýtt íþróttahús númer 45. lögð fram.

Lagt fram til kynningar.
45. fundur 15. janúar 2026 .pdf
Almenn mál
1. 201709271 - Umsókn um lóð Álaleira 11
Gunnar Gunnlaugsson óskar fyrir hönd Mikael ehf. eftir fresti til þess að ljúka framkvæmdum á lóðinni Álaleira 11 eftir að hafa fengið tilkynningu þann 16. desember um fyrirhugaða afturköllun lóðarinnar. Hann segir að framkvæmdum muni ljúka á þessu ári 2026 og segir framkvæmdir nú þegar hafnar.
Búið er að veita Mikael ehf. nokkra fresti til þess að ljúka framkvæmdum frá því í janúar 2021.


Bæjarráð samþykkir að veita Mikael ehf. frest til 31.desember 2026 til þess að ljúka framkvæmdum.
Samþykkt samhljóða.
2. 202512071 - Umsókn um lóð - Sandbakkavegur 5
T.S.E. Group ehf. sækir um lóðina Sandbakkaveg 5. Minnisblað fjármálastjóra ásamt öðrum gögnum lagt fram.

Bæjarráð óskar eftir frekari gögnum og felur fjármálastjóra og sviðsstjóra stjórnsýslusvið að vinna málið áfram.
 
Gestir
Valdís Ósk Sigurðardóttir- fjármálastjóri
3. 202512072 - Umsókn um lóð -Sandbakkavegur 3
T.s.e. Group ehf. sækir um lóðina Sandbakkaveg 5.



Bæjarráð óskar eftir frekari gögnum og felur fjármálastjóra og sviðsstjóra stjórnsýslusvið að vinna málið áfram.
 
Gestir
Valdís Ósk Sigurðardóttir- fjármálastjóri
4. 202601064 - Verktakagreiðslur
Fjármálastjóri kemur fyrir fundinn til að ræða fyrirspurnir bæjarráðs frá fundi nr. 1202 varðandi verktakagreiðslur.

Fjármálastjóra falið að vinna málið áfram.
 
Gestir
Valdís Ósk Sigurðardóttir- fjármálastjóri
5. 202202048 - Úrskurður - Kæra vegna gatnagerðagjalda Hagaleiru 11
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri hefur undirritað samkomulag við ríkislögmann um að embætti ríkislögmanns endurgreiði sveitarfélaginu að fullu bætur vegna þess kostnaðar sem greiddur hefur verið af hálfu sveitarfélagsins vegna málsins, þar með talið lögmanns- og ferðakostnað.

Greiðsla fer fram 23. janúar næstkomandi og þar með lýkur þessu máli.


Bæjarráð lýsir yfir ánægju sinni með að loks sjái fyrir endann á þessu máli.
Lagt fram til kynningar.
 
Gestir
Jóna Benný Kristjánsdóttir - Sviðstjóri stjórnsýslusviðs
6. 202509056 - Framkvæmdir - Hafnarbraut 60 - gatnagerð og veitur, undirbúningur
Niðurstöður verðkönnunar vegna Hafnarbrautar 60 lagðar fram.
Kostnaðaráætlun verkefnis hljóðar upp á 49.242.000 kr.

Eftirfarandi tilboð bárust í verkið:
Rósaberg ehf., 31.563.218 kr. 64,10% af kostnaðaráætlun.
Gröfuþjónusta Olgeirs ehf. 28.997.000 kr. 58,89% af kostnaðaráætlun.
Skaftverk ehf., 32.288.000 kr., 65,57% af kostnaðaráætlun.
Jökulfell ehf. 33.660.900 kr., 68,36% af kostnaðaráætlun.


Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda, Gröfuþjónustu Olgeirs ehf. og felur starfsmönnum umhverfis- og framkævmdasviðs að ganga til verksamninga.
Samþykkt samhljóða.
 
Gestir
Gunnlaugur Róbertsson - skipulagsfulltrúi
7. 202511086 - Beiðni um styrk til lagfæringar á dreni á Silfurnesvelli
Golfklúbbur Hornafjarðar óskar eftir staðfestingu á því að styrkur fáist til verksins. Mat á fjárhagslegum áhrifum lögð fram.

Bæjarráð samþykkir að styrkja Golfklúbb Hornafjarðar um 80% af framkvæmdakostnaði, en þó að hámarki 8.000.0000 kr. Fjármálastjóra falið að gera viðauka við fjárhagsáætlun.
Samþykkt samhljóða.
8. 202601105 - Umsögn um útgáfu tækifærisleyfis - Þorrablót eldri Hornfirðinga
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn við tækifærisleyfi, tímabundið áfengisleyfi vegna þorrablóts eldri Hornfirðinga í Sindrabæ.

Bæjarráð veitir samhljóða jákvæða umsögn.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:04 

Til baka Prenta