| Atvinnu- og menningarmálanefnd - 84 |
Haldinn í ráðhúsi, 28.01.2026 og hófst hann kl. 16:00 |
|
Fundinn sátu: Gunnar Ásgeirsson aðalmaður, Sigrún Sigurgeirsdóttir formaður, Selma Ýr Ívarsdóttir Fulltrúi ungmennaráðs, Tinna Rut Sigurðardóttir aðalmaður, Emil Örn Moravek Jóhannsson 1. varamaður, Níels Brimar Jónsson 1. varamaður, Kristín Vala Þrastardóttir Menningarmiðstöð. |
|
Fundargerð ritaði: Kristín Vala Þrastardóttir, Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar |
|
|
|
|
|
Dagskrá: |
|
|
|
| 1. 202301036 - Hornafjörður náttúrulega |
Kynningu og samráði vegna endurskoðaðrar stefnu sveitarfélagsins, Hornafjörður Náttúrulega!, er nú lokið eftir fjögurra vikna kynningar- og umsagnaferli. Drög að nýrri stefnu lögð fram til umræðu og umfjöllunnar.
|
| Nefndin þakkar vel unna endurskoðun stefnunnar og samþykkir fyrirlagðar breytingar. |
|
|
|
| 2. 202512087 - Verkefnastyrkir hjá atvinnu- og menningarmálanefnd og fræðslu- og frístundanefnd 2025-26 |
Umsóknir að verkefnastyrkjum sveitarfélagsins lagðar fram. Tillaga að verklagi sameiginlegrar úthlutunar atvinnu- og menningarmálanefndar ásamt fræðslu- og frístudanefnd lögð fram.
Alls barst 21 umsókn að upphæð 14,89 mkr. í nýjan verkefnasjóð Sveitarfélagsins Hornafjarðar en í upphafi árs 2025 barst atvinnu- og menningarnefnd tólf styrkumsóknir fyrir samtals 5,75mkr. Verkefnastyrkir verða afhentir á Menningarhátíð sveitarfélagsins 6. mars.
|
Nefndin fagnar miklum fjölda metnaðarfullra verkefna sem sóttu um í nýjan verkefnasjóð sveitarfélagsins, ljóst er að mikill metnaður er í menningarstarfi á svæðinu og fagnar nefndin því. Nefndin þakkar innsendar umsóknir og mun eiga aukafund með fræðslu- og frístundanefnd 11. febrúar nk. og úthluta styrkjum til verkefna. |
| Úthlutunarreglur verkefnastyrkja.pdf |
| Matsblad-verkefnastyrkir-SVH.pdf |
|
|
|
| 3. 202512055 - Atvinnu- og rannsóknarsjóður 2026 |
Umsóknir í Atvinnu- og rannsóknarsjóð árið 2026 og matsgögn vegna umsókna í sjóðinn lögð fram. Alls bárust sjóðnum 11 umsóknir að styrkjum, samtals að upphæð 9.683.000 króna en til úthlutunar eru 1.558.665 krónur.
|
Nefndin þakkar innsendar umsóknir og fagnar frumkvæði Hornfirðinga og fjölbreyttum verkefnum sem bárust í sjóðinn. Nefndin frestar úthlutun úr sjóðnum til næsta fundar. |
| Reglur-fyrir-atvinnu--og-rannsoknarsjod.pdf |
| Atvinnu--og-rannsoknarsjodur--Matsrammi-fyrir-rannsoknarthatt.pdf |
| Atvinnu--og-rannsoknarsjodur---Matsrammi-fyrir-atvinnuthatt.pdf |
|
|
|
| 4. 202512056 - Menningarverðlaun 2026 |
Frestur fyrir innsendar tilnefningar til Menningarverðlauna 2026 er til 18. febrúar nk.
Tilnefningar skulu berast í íbúagátt skv. eftirfarandi frétt: https://www.hornafjordur.is/stjornsysla/sveitarfelagid/frettasafn/menningarverdlaun-1
|
| Nefndin hvetur íbúa til að senda inn rökstuddar tilnefningar að handhafa Menningarverðlauna 2026 sem afhent verða á Menningarhátíð sveitarfélagsins 6. mars nk. |
|
|
|
| 5. 202601121 - Uppbyggingasjóður SASS - nýtt fyrirkomulag |
Forstöðumaður vekur athygli nefndarmanna á afnámi vorúthlutunar Uppbyggingasjóðs Suðurlands sem fram hefði átt að fara venju samkvæmt á næstu mánuðum. Uppbyggingasjóður veitir styrki til atvinnuþróunar og nýsköpunar annars vegar og menningar hinsvegar.
Umsóknir síðastliðið vor voru samtals 122, í flokki atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefna bárust 31 umsóknir og 91 í flokki menningarverkefna. Veittir voru styrkir að upphæð 16,3 mkr. til 11 verkefna í flokki atvinnuþróunar og nýsköpunar og 25,8 mkr. til 53 verkefna í flokki menningar. Samtals voru því veittir styrkir til 64 verkefna fyrir samtals 42,12 mkr. úr Uppbyggingasjóði Suðurlands síðastliðið vor.
Úr frétt SASS: Stjórn Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga hefur samþykkt að breyta verklagi við úthlutun úr Uppbyggingarsjóði Suðurlands. Helsta breytingin felst í því að fækka úthlutunum sjóðsins úr tveimur á ári í eina. Um er að ræða tilraunaverkefni til næstu tveggja ára sem miðar að því að efla faglegan stuðning við umsækjendur og tryggja skilvirkari nýtingu fjármuna. https://www.sass.is/nytt-fyrirkomulag-i-uppbyggingarsjodi-sudurlands-uthlutad-einu-sinni-a-ari-i-tilraunaskyni/
|
Atvinnu- og menningarmálanefnd lýsir miklum vonbrigðum yfir þessari ákvörðun stjórnar SASS og skömmum fyrirvara breytinganna, sérstaklega með tilliti til þeirra sem höfðu áform um að sækja um styrki á vormánuðum vegna sumar- og haust verkefna. Fyrirséð er að þessi ákvörðun muni valda neikvæðum áhrifum á framgang mikilvægra verkefna á Suðurlandi. Uppbyggingarsjóður er mikilvægur stuðningur við atvinnuþróun og menningarstarf á svæðinu. Nefndin telur æskilegt að breytingar af þessu tagi séu kynntar með lengri fyrirvara, þannig að umsækjendur hafi svigrúm til að aðlaga áætlanir sínar að nýju fyrirkomulagi.
Nefndin skorar því á stjórn SASS að fresta fyrirhuguðum breytingum þannig að tvær úthlutanir verði í ár, en nýtt fyrirkomulag verði tekið í gagnið árið 2027.
|
|
|
|
| 6. 202509069 - Skaftfellingur |
Erindisbréf ritnefndar Skaftfellings lagt fram til kynningar.
|
| Nefndin samþykkir erindisbréfið og hvetjur áhugasama um efni útgáfunnar að setja sig í samband við ritnefnd. |
|
|
|
| 7. 202601119 - Starf Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar |
Forstöðumaður kynnir starf Menningarmiðstöðvarinnar, að kynningu lokinni heimsækir nefndin opnun nýrrar sýningar, NYTJAR, á Svavarssafni.
NYTJAR er samsýning Guðlaugar Míu Eyþórsdóttur, Hönnu Dísar Whitehead og Steinunnar Önnudóttur.
Sýningin hverfist um safneign Byggðasafns Austur-Skaftafellssýslu þar sem myndlistarkonurnar Guðlaug Mía Eyþórsdóttir, Hanna Dís Whitehead og Steinunn Önnudóttir hafa skapað ný listaverk byggð á listrænni rannsókn sinni á safnkostinum.
Tímasetning opnunardags tekur mið af fæðingardegi Ástu Eiríksdóttur (1912-2008), eiginkonu Svavars Guðnasonar listamanns, sem gaf um 200 listaverk Hornfirðingsins Svavars til sveitarfélagsins Hornarfjarðar eftir hans dag. Safneign Byggðasafnsins hefur verið varðveitt í geymslurými safnsins frá árinu 2012 en árið 2021 hófu sýnendur sinn fyrsta leiðangur um safnkostinn með Birni Gísla Arnarsyni, fyrrum byggðasafns verði, sem með yfirgripsmikilli þekkingu sinni og sagnagáfu lauk upp leyndardómi muna, hvers á fætur öðrum. Verkin á sýningunni eru innblásin af sögum munanna, efnisgerð og/eða hugvitsamlegri framkvæmd þeirra.
Síðar á sýningartímabilinu verður gefin út vegleg sýningarskrá með myndum af munum úr safneign Byggðasafnsins og frásögnum Björns Gísla Arnarsonar, auk greina eftir Arnþór Gunnarsson sagnfræðing og Sigrúnu Hönnu Þorgrímsdóttur þjóðfræðing. http://gudlaugmia.com/html/sfinx.html https://www.hannawhitehead.com https://steinunnonnudottir.com
Styrktaraðilar sýningarinnar: Safnaráð SASS - Samtök íslenskra sveitarfélaga Myndlistarsjóður Myndstef
|
| Nefndin þakkar góða kynningu og hvetur íbúa og gesti til að skoða nýja sýningu Svavarssafns. |
|
|
|
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00 |
|