| Ungmennaráð Hornafjarðar - 110 |
Haldinn í ráðhúsi, 02.03.2026 og hófst hann kl. 16:00 |
|
Fundinn sátu: Selma Ýr Ívarsdóttir , Sindri Sigurjón Einarsson , Sigurður Gunnlaugsson , Björg Kristjánsdóttir , Kristján Reynir Ívarsson , Sunna Dís Birgisdóttir , Theódór Árni Stefánsson , Emil Örn Moravek Jóhannsson . |
|
Fundargerð ritaði: Emil Morávek, verkefnistjóri á fræðslu- og frístundasviði |
|
|
|
|
|
Dagskrá: |
|
|
|
| 1. 202211033 - Ungmennaráð sameiginlegur fundur með bæjaráði |
Ungmennaráð Hornafjarðar heldur árlegan samráðsfund með bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsinu á Höfn.
Markmið fundarins er að eiga uppbyggilegt og markvisst samtal um stöðu og framtíð málefna er varða börn og ungmenni í sveitarfélaginu. Á fundinum verður farið yfir niðurstöður Barna- og ungmennaþings sem haldið var í nóvember, rætt um framtíðarsýn í skólamálum, uppbyggingu íþrótta- og frístundasvæða, sem og aðbúnað, öryggi og aukin tækifæri til samveru.
Jafnframt hyggst ungmennaráð ræða við bæjarráð um helstu áherslur komandi kjörtímabils, standa vörð um stöðu sveitarfélagsins sem barnvænt samfélag og tryggja áfram að rödd barna og ungmenna fái raunverulegt vægi í ákvarðanatöku. Einnig verður óskað eftir umræðu um valin atriði úr samstarfssáttmála meirihlutans.
|
Ungmennaráð þakkar bæjarráði kærlega fyrir gott og málefnalegt samtal og fyrir að fara yfir fjölmörg málefni sem varða ungt fólk í sveitarfélaginu.
Á fundinum var meðal annars rætt um stöðu skólamála og uppbyggingu nýs skólahúsnæðis, íþróttamannvirki og útisvæði, leikvelli, hreystibraut, skipulagsmál, húsnæðisuppbyggingu, leikskólamál, umhverfismál og aðgengi að þjónustu.
Ungmennaráð leggur áherslu á áframhaldandi reglulegt samtal og virka aðkomu ungs fólks að ákvarðanatöku og þróun samfélagsins. Mikilvægt er að gott samstarf milli ungmennaráðs og kjörinna fulltrúa haldi áfram á næsta kjörtímabili svo tryggt sé að raddir ungs fólks hafi raunveruleg áhrif. Jafnframt er mikilvægt að Hornafjörður haldi áfram að vera leiðandi í starfi ungmennaráða og sýni í verki að framlag ungs fólks sé metið og tekið alvarlega. |
|
| |
| Gestir |
| Bæjarráð Hornafjðarar: Hjördís Edda Olgeirsdóttir, Eyrún Fríða Árnadóttir og Ásgerður Kristín Gylfadóttir |
|
|
| 2. 202602162 - Sumarfrístund 2026 |
Ungmennafélagið Sindri hefur sagt upp samningi sínum við sveitarfélagið er snýr að leikjanámskeiðum sem verið hafa fastur liður á sumrin undanfarna áratugi og að miklu leyti mótað og stýrt sumarstarfi yngri barna.
Starfsfólk á fræðslu- og frístundasviði hefur velt upp mögulegum breytingum með það í huga að efla sumarfrístundna.
Hugmyndir að breytingum lagðar fram til kynningar og umræðu innan ungmennaráðs.
|
Ungmennaráð þakkar fyrir kynninguna og telur hugmyndir fræðslu- og frístundasviðs bæði góðar og raunhæfar.
Ungmennaráð hvetur alla þá sem koma að þessari vinnu að vanda vel til verka, enda er gott frístundastarf afar mikilvægt. Mikilvægast af öllu er að allar ákvarðanir og útfærslur séu unnar með hag barna að leiðarljósi. Gott og aðgengilegt frístundastarf er ein af lykilforsendum vellíðunar barna og fjölskyldna og hefur jákvæð áhrif á samfélagið í heild. |
|
|
|
| 3. 202601015 - Skuggakosningar 2026 ( Sveitarstjórnarkosningar) |
Farið yfir verkplani fyrir skuggakosningar og staða mála rædd
|
Skipulag skuggakosninganna er í fullum gangi og mun skipulagsnefnd kynna lokafyrikomulag á fundi ráðsins 13. apríl.
Stefnt er að pallborðsumræðum framboða 5. maí í Nýheimum fyrir ungmenni.
Skuggakosningar verða væntanlega miðvikudaginn 13. maí. Um kvöldið verður viðburður í Sindrabæ þar sem boðið verður upp á mat og góða stemningu.
Niðurstöður kosninganna verða kynntar eftir að fyrstu tölur verða birtar á kjördag, 16. maí.
Ungmennaráð þakkar þeim fulltrúum sem fara með skipulag kosninganna og felur þeim að halda áfram vinnunni í samráði við verkefnastjóra á fræðslu- og frístundasviði. |
|
|
|
| 4. 202602180 - Fyrirmyndaverkefni 2025 |
UNICEF vinnur að útgáfu bæklings sem fjallar um fyrirmyndarverkefni barnvænna sveitarfélaga. Sveitarfélagið Hornafjörður og Ungmennaráð þess eiga að sjálfsögðu verkefni í bæklingnum.
|
| Á sama tíma og ungmennaráð veitir UNICEF heimild til að birta umræddar aðgerðir í bæklingnum, þakkar ráðið fyrir þann heiður að fá að vera hluti af verkefninu. Þar er fjöldi afar glæsilegra og vandaðra verkefna sem eru sannarlega til fyrirmyndar. Sveitarfélagið Hornafjörður þarf að vinna markvisst að því að viðhalda viðurkenningu UNICEF um að vera barnvænt sveitarfélag. |
|
|
|
| 5. 202510010 - Fulltrúar í fastanefndum fara yfir málin |
Fulltrúar ungmennaráðs í fastanefndum sveitarfélagsins kynna umræður og mál sem þeim finnst standa upp úr af fundum nefndanna. Það sem er áhugaverðast eða hefur verið mest umdeilt eða eftirminnilegt.
|
Á fundinum var farið yfir þau mál sem nú eru til umfjöllunar hjá fastanefndum þar sem áheyrnarfulltrúar hafa setið fundi. Þar má nefna dýpkun hafnar, uppbyggingu hleðslubílastæða við miðbæ og Nettó, skólamál, styrkveitingar og önnur mál sem eru á dagskrá nefndanna.
Einnig var rætt um svæðisbundið samráðsfund á Austurlandi sem fram fer í Hátíðarsal Menntaskólans á Egilsstöðum 6. mars kl. 16:00-18:00. Fundurinn er ætlaður ungu fólki á aldrinum 15-25 ára og er markmið hans að skapa vettvang fyrir opið samtal og miðlun hugmynda til fulltrúa sveitarfélaga og íþrótta- og æskulýðsstarfs. Fundurinn er hluti af landsverkefni UMFÍ, ÍSÍ og samstarfsaðila og er leiddur af Ólafi Stefánssyni, fyrrverandi landsliðsfyrirliða í handknattleik. Fulltrúum ungmennaráðs er boðið að taka þátt og munu áhugasamir hafa samband við verkefnastjóra.
Á fundinum var jafnframt rætt um ungmennastefnu stjórnvalda sem nú er í mótun. Ungmennaráð leggur til að haldinn verði aukafundur til að fara nánar yfir stefnumótunina. Þá hefur verið óskað eftir fresti á áður auglýstri tímasetningu í samráðsgátt til að tryggja að ungmennaráð um land allt fái raunhæft tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri áður en frestur rennur út. |
|
|
|
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00 |
|