|
|
| 1. 2602021F - Hafnarstjórn Hornafjarðar - 282 |
Fundargerð Hafnarstjórnar númer 282 lögð fram.
|
| Lagt fram til kynningar. |
|
|
|
| 2. 2602016F - Umhverfis- og skipulagsnefnd - 111 |
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar nr. 111 lögð fram.
|
| Lagt fram til kynningar. |
|
| |
| Gestir |
| Gunnlaugur Róbertsson, skipulagsfulltrúi |
|
|
|
|
| 3. 202602003 - Ægissíða - gönguleið |
Lögð var fram verðfyrirspurn um að leggja gönguleið, tengingu milli Ægissíðu Eystri við göngustíganet á Ægissíðu Syðri. Tímafresti til að skila inn svörum við fyrirspurninni lauk 1. mars sl.
Eftirfarandi verð bárust: 1. Rósaberg, 3.315.000 kr. 2. Guðni Þór, 7.585.740 kr. 3. Gröfuþjónusta Olgeirs, 3.724.060 kr. 4. Jökulfell, 4.000.000 kr.
|
Bæjarráð samþykkir samhljóða að gengið verði til samninga við Rósaberg ehf.
|
|
| |
| Gestir |
| Bartek Andresson Kass, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs |
|
|
| 4. 202008048 - Tæming rotþróa í sveitarfélaginu |
Minnisblað með niðurstöðu útboðs vegna tæmingar rotþróa tekið fyrir. Tvö tilboð bárust, frá Hreinsitækni og Funa. Útboðið var sett upp sem rammasamningsútboð í tveimur þrepum þar sem heimilt er að gera rammasamning við allt að þrjá aðila. Báðir bjóðendur uppfylla skilyrði til að gerður verði rammasamningur við þá.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur aukinn sveigjanleika falinn í því að gera samning við báða aðila þar sem heimildir til þess koma fram í útboðinu.
|
| Bæjarráð samþykkir samhljóða að gengið verði til samninga við báða bjóðendur. |
|
| |
| Gestir |
| Bartek Andresson Kass, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs |
|
|
| 5. 202602077 - Eyðing dýraleyfa |
Sveitarfélaginu barst erindi varðandi eyðingu dýraleifa. Þar er óskað eftir að kostnaður sem fellur til vegna förgunar dýrahræja verði sendur á fyrirtæki en ekki innifalinn í fasteignagjöldunum.
|
| Bæjarráð felur fjármálastjóra að útfæra gjöldin með þeim hætti að hægt sé að verða við beiðni um breytingu á greiðanda. |
|
| |
| Gestir |
| Bartek Andresson Kass, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs |
|
|
| 6. 202407010 - Framkvæmd - Hagahverfi (ÍB5), innviðauppbygging, undirbúningur |
Sveitarfélagið hefur leitað tilboða í verkið Framkvæmd - Hagahverfi (ÍB5), innviðauppbygging, undirbúningur. Kostnaðaráætlun verkefnis var 109.162.000 kr. Eftirfarandi tilboð bárust sveitarfélaginu: 1. Austurverk - 102.255.500 kr., þ.e. 93,67% af kostnaðaráætlun 2. Rósaberg - 65.404.316 kr., þ.e. 59,91% af kostnaðaráætlun 3. Jökulfell - 63.137.613 kr., þ.e. 57,84% af kostnaðaráætlun 4. Skaftverk - 85.410.273 kr., þ.e. 78,24% af kostnaðaráætlun 5. Jökulfell frávik - 60.129.513 kr., þ.e. 55,05% af kostnaðaráætlun
Lagt er til við bæjarráð að samþykkja tilboð Jökulfells að upphæð 63.137.613 kr.
|
Frávikstilboð Jökulfells ehf. uppfyllir ekki ákveðin skilyrði sem gerð eru til verksins og telst því ekki gilt.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að ganga til samninga við Jökulfell ehf. sem átti lægsta gilda tilboðið að fjárhæð 63.137.613 kr.
|
| Útboð Hagahverfi jarðvinna.pdf |
|
| |
| Gestir |
| Bartek Andresson Kass, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs |
|
|
| 7. 202603010 - Umferðaröryggi á bryggjusvæði |
Innsent erindi frá Skinney - Þinganesi hf. varðandi umferðaröryggi á bryggjusvæði lagt fram.
|
| Bæjarráð samþykkir samhljóða að forstöðumaður Hornafjarðarhafna ásamt skipulagsfulltrúa boði hlutaðeigandi aðila til samráðs um útfærslu á öryggismálum á svæðinu. |
|
| |
| Gestir |
| Gunnlaugur Róbertsson, skipulagsfulltrúi |
| Bartek Andersson Kass, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs |
|
|
| 8. 202603015 - Framkvæmd Hafnarskóli Endurbætur þak |
Óskað er samþykkis bæjarráðs til að hefja verðfyrirspurnarferli vegna framkvæmdar Hafnarskóli Endurbætur þaks. Kostnaðaráætlun er í samræmi við fjárhags- og framkvæmdaáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2026.
|
Bæjarráð veitir heimild til að hefja verðfyrirspurnarferli vegna framkvæmdarinnar. Samþykkt samhljóða. |
|
|
|
| 9. 202405047 - Útboð Hafnarbraut 27 Ráðhús 1.áfangi |
Óskað er samþykkis bæjarráðs til að hefja verðfyrirspurnarferli vegna kaupa á þjónustu byggingarstjóra fyrir 1. áfanga framkvæmdar við endurbætur á ráðhúsi. Kostnaðaráætlun er í samræmi við fjárhags- og framkvæmdaráætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2026.
|
Bæjarráð veitir samhljóða heimild til að hefja verðfyrirspurnarferli vegna kaupa á þjónustu byggingastjóra.
|
|
| |
| Gestir |
| Bartek Andresson Kass, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs |
|
|
| 10. 202409013 - Skólamáltíðir útboð 2025 |
Sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs lagði fram minnisblað og úrskurð úrskurðarnefndar kærunefndar útboðsmála varðandi útboð á skólamálatíðum fyrir Grunnskóla Hornafjarðar. Í úrskurðinum var lagt fyrir sveitarfélagið að auglýsa útboðið á nýjan leik.
Að mati kærunefndar útboðsmála fól krafa um að matur skyldi framleiddur í innan við 15 km radíus frá afhendingarstað í sér brot gegn lögum nr. 120/2016. Í ljósi þess féllst kærunefnd á að útboðið yrði fellt úr gildi og lagði fyrir sveitarfélagið að auglýsa innkaupin á nýjan leik með lögmætum hætti og að gættum forsendum úrskurðarins.
|
Sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs er falið að segja upp samningi við núverandi samningsaðila í ljósi þess að kærunefndin mat útboðið ógilt ásamt því að undirbúa nýtt útboðsferli í samráði við lögmann.
Samþykkt samhljóða. |
| Úrskurður í máli nr. 10-2025.pdf |
|
|
|
| 11. 202602153 - Uppsögn Umf.Sindri á hluta af samning |
Sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs leggur fram uppsögn ungmennafélagsins Sindra á þeim hluta þjónustusamnings við Sveitarfélagið Hornafjörð sem snýr að íþrótta- og frístundaskóla (leikjanámskeiða) frá og með 1. janúar 2026.
|
| Bæjarráð hefur móttekið uppsögnina og felur fjármálastjóra að sjá til þess að greiðslur verði felldar niður fyrir þennan hluta samningsins. Sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs er falið að vinna að lausn á framkvæmd verkefnisins fyrir komandi sumar. |
|
|
|
| 12. 202602044 - Fjölmenningarleg inngilding - Ósk um samstarf |
Lögð eru fram drög að samningi um stuðning sveitarfélagsins við fjölmenningarlega inngildingu í FAS. Samningurinn felur í sér að FAS taki að sér að kenna áfanga fyrir íbúa af erlendum uppruna með sérstaka áherslu á að kynna íslenskt samfélag og þá sér í lagi hornfirskt samfélag. Gert er ráð fyrir að áfanginn verði kenndur í tvær annir, fyrst á haustönn 2026. Styrkurinn nemur tveimur milljónum króna í hvort skipti sem áfanginn verður kenndur.
|
Bæjarráð vísar samningnum til fjármálastjóra til mats á fjárhagslegum áhrifum.
Samþykkt samhljóða. |
|
|
|
| 13. 202602076 - Stjórnunar- og verndaráætlun fyrir hreindýr- tilnefnig fulltrúa til þátttöku í áætlunargerð |
Náttúruverndarstofnun vinnur nú að gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir hreindýr. Markmið vinnunnar er að móta heildstæða og faglega áætlun um vernd, nýtingu og stjórnun stofnsins til framtíðar.
Sveitarfélagið Hornafjörður fellur undir núverandi útbreiðslusvæði hreindýra en á ekki fulltrúa í hreindýraráði. Að mati Náttúruverndarstofnunar er mikilvægt að sveitarfélagið eigi beina aðkomu að þeirri vinnu sem framundan er, enda snerta viðfangsefni á borð við útbreiðslusvæði hreindýra, ágang og þéttleika dýra hagsmuni sveitarfélagsins með beinum hætti.
Af því tilefni óskar Náttúruverndarstofnun eftir að Sveitarfélagið Hornafjörður tilnefni fulltrúa til þátttöku í vinnu við gerð áætlunarinnar. Einnig er velkomið að tilnefna tengilið sem fylgist með vinnunni ef það hentar sveitarfélaginu betur.
|
| Bæjarráð felur sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs að tilnefna fulltrúa eða tengilið til þátttöku í vinnu við gerð áætlunarinnar. |
|
|
|
| 14. 202603011 - Áskorun frá siglingasambandi Íslands |
Lögð er fram áskorun 53. Siglingaþings SÍL til sveitarfélaga um að leggja aukna og markvissa áherslu á vernd og góða umgengni um strandlengju lendsins, tryggja aðgengi almennings að sjónum til útivistar og jafnframt að huga sérstaklega að stuðningi við íþróttafélög og starfsemi sem byggir á nýtingu sjávar og strandar.
Sveitarfélög eru hvött il að tryggja félögum sem stunda sjótengda starfsemi viðunandi aðstöðu, aðgang að sjó, aðstöðu til geymslu búnaðar og gera ráð fyrir starfsemi þeirra í skipulagi.
|
Bæjarráð vísar áskoruninni til umfjöllunar í hafnarstjórn og í umhverfis- og skipulagsnefnd.
Samþykkt samhljóða. |
|
|
|
| 15. 202603013 - Fundarboð- Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga 2026 |
Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. verður haldinn föstudaginn 20. mars 2026 á Grand hótel í Reykjavík og í gegnum fjarfundarbúnað.
|
Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara með atkvæði sveitarfélagsins á fundinum.
Samþykkt samhljóða. |
|
|
|
| 16. 202603012 - Fundarboð- Ársfundur Heilbrigðisstofnun Suðurlands |
Ársfundur Heilbrigðisstofnunar Suðurlands fer fram á Hótel Selfossi, fimmtudaginn 28. maí 2026.
|
| Lagt fram til kynningar. |
|
|
|
| 17. 202603014 - Vatnaskil í þjóðlendumálum - ráðstefna í Safnahúsinu |
Forsætisráðuneytið stendur fyrir ráðstefnu undir yfirskriftinni Vatnaskil í þjóðlendumálum. Á ráðstefnunni sem haldin verður fimmtudaginn 12. mars í Safnahúsinu við Hverfisgötu verður fjallað um málefni þjóðlenda en þau tímamót urðu í desember sl. að óbyggðanefnd kvað upp síðustu úrskurði sína. Nefndin hefur þar með lokið því verkefni sínu sem hófst 1998 að fjalla um mörk þjóðlenda og eignarlanda á landinu öllu.
|
| Lagt fram til kynningar. |
|
|
|
| 18. 202603021 - Umsögn - 499.mál - varnir gegn sjóflóðum og skriðuföllum og Vegagerðin, framkvæmdastofnun samgöngumála (markmið nýting eigna, framkvæmdaumsjón) |
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 499.mál - varnir gegn sjóflóðum og skriðuföllum og lögum um Vegagerðina, framkvæmdastofnun samgöngumála (markmið nýting eigna, framkvæmdaumsjón).
Frestur til að skila inn umsögnum er til 19. mars nk.
|
| Bæjarráð felur sviðsstjóra stjórnsýslusviðs að skrifa drög að umsögn í málinu í samræmi við umræður á fundinum. |
|
|
|
| 19. 202602038 - Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026 |
Hér er gerð grein fyrir viðauka nr. 2 við fjárhagsáætlun ársins 2026 og fjárhagslegum áhrifum hans.
Viðaukinn felur í sér eftirfarandi breytingar á rekstri: Umsókn um endurnýjun á æfingatækjum í eigu Sveitarfélagsins Hornafjarðar fyrir hönd leigutaka, 4,09 m.kr. Styrkbeiðni vegna endurbóta á félagsheimili í Stekkhól, 8,34 m.kr. Styrkbeiðni til Still Vivid ehf. vegna kvikmyndarinnar Á landi og sjó, 2,50 m.kr.
Meðfylgjandi yfirlit sýnir áhrif viðaukans á upphaflega samþykkta fjárhagsáætlun ársins. Viðbótarfjárheimild að fjárhæð 14,93 m.kr. verður mætt með lækkun á handbæru fé.
|
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við viðauka 2 og vísar honum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Samþykkt samhljóða. |
| FHÁ 26 Viðauki 2 - minnisblað.pdf |
| Viðauki_2.pdf |
|
|
|
| 20. 202603025 - Umsögn - 505.mál - Sveitarstjórnarlög |
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 505. mál - Sveitarstjórnarlög
Frestur til að senda inn umsögn er til og með 20. mars nk.
|
| Lagt fram til kynningar. |
|
|
|
| 21. 202412078 - Fundartími bæjarráðs |
Lagt er til að fundur bæjarráðs þann 7. apríl verði felldur niður vegna páskahátíðarinnar.
|
| Samþykkt samhljóða. |
|
|
|
| 22. 202603030 - Stefna vegna byggingar hjúkrunarheimilis |
Verktakinn Húsheild ehf. hefur lagt fram stefnu vegna riftunar verksamnings um byggingu hjúkrunarheimilisins á Höfn. Málið verður þingfest 17. mars nk.
|
Bæjarráð áréttar að samkomulag hefur verið gert milli sveitarfélagsins og ríkisins um yfirtöku ríkisins á framkvæmdum við hjúkrunarheimilið á Höfn og þeim skuldbindingum sem tengjast verkefninu. Lagt fram til kynningar.
|
|
|
|