|
|
| 1. 2602004F - Velferðarnefnd - 48 |
Fundargerð velferðarnefndar númer 48 lögð fram.
|
| Lagt fram til kynningar. |
|
| |
| Gestir |
| Skúli Ingibergur Þórarinsson - Sviðstjóri velferðarsviðs |
|
|
| 2. 2601018F - Íbúaráð - Suðursveit og Mýrar - 11 |
Fundargerð íbúaráðs Suðursveitar og Mýra númer 11 lögð fram.
|
| Lagt fram til kynningar. |
|
|
|
| 3. 2601017F - Íbúaráð - Nes og Lón - 11 |
Fundargerð Nesja og Lóns númer 11 lögð fram.
|
| Lagt fram til kynningar. |
|
|
|
|
|
| 4. 202511078 - Málefni héraðsfréttablaðsins Eystrahorns |
Forstöðumaður mennningarmiðstöðvar og útgefandi Eystrahorns koma á fund til þess að ræða málin.
|
| Bæjarstjóra falið að undirrita samkomulag við útgefendur Eystrahorns í samræmi við umræður á fundinum. |
|
| |
| Gestir |
| Kristín Vala Þrastardóttir - Forstöðumaður menningarmiðstöðvar |
| Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir |
|
|
| 5. 202510042 - Barnaverndarþjónusta Fjarðabyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar |
Kynning á starfsemi þjónustusvæðis Sveitarfélagsins Hornafjarðar í Barnaverndarþjónustu Fjarðabyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Farið er yfir lykiltölur fyrir árið 2025 og samanburð frá árinu 2020.
|
| Bæjarráð þakkar góða yfirferð á stöðu barnaverndarþjónustu í sveitarfélaginu. |
|
| |
| Gestir |
| Skúli Ingibergur Þórarinsson - Sviðstjóri velferðarsviðs |
|
|
| 6. 202601129 - Heilsuþjálfun í Hornafirði - Spretthópur um heilsueflingu eldri borgara |
Ein af aðgerðum ársins 2026 í framtíðarsýn um málefni aldraðra í Sveitarfélaginu Hornafirði er að setja á fót spretthóp sem skal framkvæma úttekt á úrræðum heilsueflingar eldri borgara í sveitarfélaginu. Starfsmenn hafa unnið að því að gera drög að vinnu spretthópsins og leggja nú fram minnisblað þess efnis ásamt drögum að erindisbréfi.
|
| Sviðsstjóra velferðarsviðs er falið að leggja fram uppfært erindisbréf á næsta fundi bæjarráðs í samræmi við umræður á fundinum. |
|
| |
| Gestir |
| Skúli Ingibergur Þórarinsson - Sviðstjóri velferðarsviðs |
|
|
| 7. 202601075 - Stefna í málefnum fatlaðs fólks 2027-2035 |
Unnið er að stofnun vinnuhóps um stefnumótun í málefnum fatlaðs fólks. Lögð eru fram drög að erindisbréfi fyrir vinnuhópinn.
|
| Sviðsstjóra velferðarsviðs er falið að vinna að undirbúningi fyrir stefnumótunina sem áætlað er að hefjist næsta haust að loknum kosningum. |
|
| |
| Gestir |
| Skúli Ingibergur Þórarinsson - Sviðstjóri velferðarsviðs |
|
|
| 8. 202601161 - Frístundaakstur 2026 |
Minnisblað sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs um frístundaakstur lagt fram.
|
| Bæjarráð samþykkir tillögu að breyttu fyrirkomulagi á skóla- og frístundaakstri. Sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs falið að vinna málið áfram. |
|
| |
| Gestir |
| Þórgunnur Torfadóttir- sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs |
|
|
| 9. 202602078 - umsókn um endurnýjun á æfingatækjum í eigu bæjarfélagsins Hornafjarðar fyrir hönd leigutaka |
S.S. Sport sækir um fjármagn til endurnýjunar á tækjum sem eru í eigu sveitarfélagsins og eru nýtt í Sporthöllinni.
|
| Sviðsstjóra fræðslu- og frístundanefndar falið að vinna málið áfram og koma með tillögu og mat á fjárhagslegum áhrifum á næsta fund bæjarráðs. |
|
| |
| Gestir |
| Þórgunnur Torfadóttir- sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs |
|
|
| 10. 202602074 - Styrkbeiðni vegna endurbóta á félagsheimili í Stekkhól |
Hestamannafélagið Hornfirðingur sækir um styrk hjá Sveitarfélaginu Hornafirði að upphæð 8.340.000 kr. vegna endurbóta á félagsheimili sínu að Fornustekkum í Nesjum.
|
| Fjármálastjóra falið að gera mat á fjárhagslegum áhrifum. |
|
|
|
| 11. 202602041 - Krafa um viðurkenningu ábyrgðar og greiðslu vegna tafa á deiliskipulagi og fjártjóns |
Þann 5. febrúar síðastliðinn barst sveitarfélaginu krafa frá Marina Travel ehf. um viðurkenningu ábyrgðar og greiðslu vegna tafa á deiliskipulagi og fjártjóns.
Lagt er fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs með tímalínu í málinu auk álits lögmanns.
|
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara kröfu Marina Travel ehf.
Samþykkt samhljóða. |
|
| |
| Gestir |
| Jóna Benný Kristjánsdóttir - Sviðstjóri stjórnsýslusviðs |
|
|
| 12. 202510068 - Framlög til stjórnmálaflokka |
Staðfesting á skráningu Kex framboðsins sem stjórnmálasamtök lögð fram.
|
| Lagt fram til kynningar. |
|
| |
| Gestir |
| Jóna Benný Kristjánsdóttir - Sviðstjóri stjórnsýslusviðs |
|
|
| 13. 202510018 - Fyrirhugaðar breytingar Heilbrigðiseftirlitsins |
Samtök heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi hafa sent inn umsögn í samráðsgátt um fyrirhugaðar breytingar á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum og eru hér lögð fram.
|
| Sviðsstjóra stjórnsýslusviðs er falið að senda inn umsögn um málið. |
|
| |
| Gestir |
| Jóna Benný Kristjánsdóttir - Sviðstjóri stjórnsýslusviðs |
|
|
| 14. 202602075 - Auglýsing eftir framboðum í stjórn Lánsjóðs sveitarfélaga |
Lánasjóður sveitarfélaga auglýsir eftir framboðum í stjórn. Aðalfundur félagsins er 20. mars næstkomandi.
|
| Lagt fram til kynningar. |
|
|
|
| 15. 202602060 - Fundur með ISAVIA |
Fundur var haldin með framkvæmdastjóra ISAVIA ásamt umdæmisstjóra um málefni tengd flugsamgöngum í sveitarfélaginu. Fundargerð og glærukynning frá ISAVIA lagt fram.
|
Bæjarráð þakkar fulltrúum ISAVIA fyrir góðan og upplýsandi fund um málefni flugvalla og flugsamgangna í sveitarfélaginu.
Á fundinum var meðal annars farið yfir samstarf ISAVIA og Slökkviliðs Hornafjarðar, þar sem er stefnt að formlegum samningi um sameiginlegar æfingar og þjálfun. Þá var staðfest að slökkvibúnaður á flugvellinum hefur verið uppfærður og næsta formlega flugslysaæfing áætluð árið 2028.
Einnig var rætt um öryggisinnviði í Öræfum og mögulega staðsetningu björgunarmiðstöðvar í tengslum við flugvelli á svæðinu. Unnið er að þarfagreiningu og frekara samráð við viðbragðsaðila og íbúa er fyrirhugað áður en ákvörðun um staðsetningu liggur fyrir. Ljóst er að málið krefst frekari vinnu, samráðs og aðkomu stjórnvalda.
Varðandi Hornafjarðarflugvöll kom fram að flugið sé stöðugt og þjóni 8?10 þúsund farþegum árlega. Undanfarin ár hafa verið gerðar umtalsverðar umbætur á flugvellinum, m.a. á flugbraut, ljósabúnaði, slökkvibúnaði og veðurmælingum.
Bæjarráð þakkar fulltrúum ISAVIA fyrir jákvætt samtal og leggur áherslu á áframhaldandi gott samstarf.
|
|
|
|
Eyrún Fríða Árnadóttir vék af fundi undir þessum lið. Gauti Árnason tók við fundarstjórn.
|
| 16. 202602084 - Beiðni um ferðaheimild vegna funda kjörinna fulltrúa |
Óskað er eftir ferðaheimild vegna þátttöku á málþingi Byggðastofnunnar um áhrif loftslagsbreytinga. Einnig er óskað eftir greiðslu akstursstyrks vegna fundar varamanns í dreifbýli.
|
Bæjarráð veitir heimild til greiðslu og styðst með því við 7.gr. samþykkt um kjör kjörinna fulltrúa og samþykkir því greiðslu sem nemur 1,5% af viðmiðunarupphæð fyrir setinn fund. Bæjarráð veitir heimild til greiðslu aksturstyrks skv. 11.gr. sömu samþykktar.
Samþykkt samhljóða. |
|
|
|
| 17. 202602086 - Skýrsla bæjarstjóra um ýmsa fundi við ráðuneyti og stofnanir |
Lagt fram til kynningar minnisblað bæjarstjóra um fundi sem haldnir hafa verið undanfarið með Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Vegagerðinni, FSRE og Fjármála- og efnahagsráðuneytinu vegna verkefna og hagsmuna sveitarfélagsins. Rætt var um eflingu bráðaviðbragðs og mögulegt heilsugæslusel í Öræfum, flýtingu endurbyggingar Loðnubryggju, stöðu framkvæmda við nýtt hjúkrunarheimili á Höfn og endanlegt fjárhagslegt uppgjör og framtíðareignarhald vegna þess verkefnis.
|
Bæjarráð lýsir ánægju með framgang mála og þann lausnamiðaða farveg sem viðræður eru komnar í, og leggur áherslu á að áfram verði unnið markvisst að því að tryggja hagsmuni sveitarfélagsins og íbúa þess.
|
|
|
|