|
|
| 1. 2601006F - Velferðarnefnd - 47 |
Fundargerð velferðarnefndar númer 47 lögð fram.
|
| Lagt fram til kynnningar. |
|
| |
| Gestir |
| Skúli Ingibergur Þórarinsson - Sviðstjóri velferðarsviðs |
|
|
| 2. 2512018F - Umhverfis- og skipulagsnefnd - 108 |
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar númer 108 lögð fram.
|
| Lagt fram til kynningar. |
|
| |
| Gestir |
| Gunnlaugur Róbertsson - skipulagsfulltrúi |
|
|
| 3. 2601005F - Fræðslu- og frístundanefnd - 132 |
Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar númer 132 lögð fram.
|
| Lagt fram til kynningar. |
|
| |
| Gestir |
| Þórgunnur Torfadóttir- sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs |
|
|
|
|
| 4. 202601068 - Kaup á þjónustubifreið - Stuðnings- og virkniþjónusta |
Í fjárhagsáætlun 2026 er gert ráð fyrir kaupum á nýrri þjónustubifreið fyrir stuðnings- og virkniþjónustu. Bifreiðin væri sérútbúinn með þeim hætti að hægt væri að sinna akstursþjónustu með hjólastólaðagengi.
Framlagt er minnisblað starfsmanna þar sem lagt er til að sveitarfélagið kaupi sérútbúna Volkswagen Transport bifreið sem er sérútbúin með hjólastólalyftu á hlið bílsins. Auk þess er bifreiðin útbúin brautum og festingum til að tryggja nægt pláss og öryggi farþega.
|
Bæjarráð samþykkir kaupin, enda liggur fyrir fjármagn til kaupannna í fjárhagsáætlun. Samþykkt samhljóða. |
|
| |
| Gestir |
| Skúli Ingibergur Þórarinsson - Sviðstjóri velferðarsviðs |
|
|
| 5. 202601075 - Stefna í málefnum fatlaðs fólks 2027-2035 |
Stefnt er að því að vinna drög að stefnu í málefnum fatlaðs fólks í Sveitarfélaginu Hornafirði fyrir árin 2027-2035. Lagt er fram minnisblað þar sem farið er yfir áform um hvernig staðið skuli að mótun stefnunnar.
|
| Sviðsstjóra velferðarsviðs falið að gera drög að verk- og tímaáætlun ásamt erindisbréfi fyrir starfshóp. |
|
| |
| Gestir |
| Skúli Ingibergur Þórarinsson - Sviðstjóri velferðarsviðs |
|
|
| 6. 202511078 - Málefni héraðsfréttablaðsins Eystrahorns |
Minnisblað forstöðumanns menningarmiðstöðvar lagt fram.
|
| Forstöðumanni Mennningarmiðstövðar falið að vinna málið áfram fyrir næsta fund bæjarráðs. |
|
| |
| Gestir |
| Kristín Vala Þrastardóttir - Forstöðumaður menningarmiðstöðvar |
|
|
| 7. 202502009 - Starfshópur um húsnæðismál Grunnskóla Hornafjarðar |
Starfshópur um húsnæðismál Grunnskóla Hornafjarðar hefur nú lokið störfum og skilað inn lokaskýrslu. Lokaskýrslan lögð fram til kynningar ásamt síðustu fundagerð hópsins.
Starfshópurinn var einskonar spretthópur sem hóf störf í september og skilar nú lokaskýrslu. Í niðurstöðum sínum leggur hópurinn áherslu á þrjú atriði. 1. Það er komin tími til að endurbæta húsnæði Grunnskóla Hornafjarðar. Í Hafnarskóla er þörfin brýnni. 2. Horfa skyldi á uppbyggingu Grunnskóla Hornafjarðar við Heppuskóla. 3. Það er mikilvægt að skipuleggja skólasvæðið vel og leggja áherslu á að það tali vel við þau íþróttamannvirki sem fyrirhugað er að byggja á svæðinu.
|
Bæjarráð þakkar starfshópnum fyrir starfið. Þeim hluta sem varðar skipulagsmál er vísað til umfjöllunar í umhverfis- og skipulagsnefnd. Skýrslunni er einnig vísað til kynningar hjá stýrihóp um byggingu nýs íþróttahúss.
|
| 7. fundur þriðjudaginn 20. janúar 2026.pdf |
| Lokaskýrsla starfshóps.pdf |
|
| |
| Gestir |
| Þórgunnur Torfadóttir- sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs |
|
|
| 8. 202510072 - Útboð - Fráveita, áfangi 4B |
Niðurstöður verðkönnunar vegna fráveitu áfanga 4B lagðar fram. Kostnaðaráætlun verkefnis hljóðar upp á 82.662.500 kr.
Eftirfarandi tilboð bárust í verkið: Rósaberg ehf., 64.702.4722 kr. 78,27% af kostnaðaráætlun. Gröfuþjónusta Olgeirs ehf. 64.286.024 kr. 77,77% af kostnaðaráætlun.
|
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda, Gröfuþjónustu Olgeirs ehf. og felur starfsmönnum umhverfis- og framkvæmdasviðs að ganga til verksamnings. Samþykkt samhljóða. |
|
| |
| Gestir |
| Gunnlaugur Róbertsson - skipulagsfulltrúi |
|
|
| 9. 202512021 - Samgönguáætlun 2026-2040 |
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 322. mál - Samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára aðgerðaráætlun fyrir árin 2026-2030. Umsagnarfrestur er til og með 9. febrúar næstkomandi.
|
| Bæjarstjóra er falið að vinna drög að umsögn um samgönguáætlun fyrir næsta fund bæjarráðs. |
|
|
|
| 10. 202601063 - Beiðni um rekstrarstyrk- Fenrir Elite Fitness |
Á fundi bæjarráðs þann 13.01.2026 var óskað eftir frekari gögnum varðandi beiðni um rekstrarstyrk. Umbeðin gögn lögð fram.
|
Bæjarráð samþykkir að veita rekstrarstyrk að upphæð 2.500.000 kr. til Fenris til eflingar barna- og ungmennastarfs og frekari menntunar þjálfara á því sviði.
Samþykkt samhljóða. |
|
|
|
| 11. 202601124 - Breytingar á verklagi og úthlutunartíðni Uppbyggingarsjóðs Suðurlands |
Á 632. Stjórnarfundi SASS var ákveðið að fækka úthlutunum sjóðsins úr tveimur á ári í eina.
|
| Málið verður tekið fyrir á næsta fundi atvinnu- og menningarmálanefnd, Bæjarráð frestar umræðu um málið. |
|
|
|
| 12. 202601123 - Beiðni um samstarf um byggingu fjölnota íþróttahúss í Öræfum |
Félag fjallaleiðsögumanna á Íslandi (AIMG) óska eftir að hefja samtal við Sveitarfélagið Hornafjörð varðandi uppbyggingu fjölnota íþróttahúss sem meðal annars yrði nýtt fyrir kennsluaðstöðu fyrir fjallamennsku í Öræfum.
|
| Bæjarráð þakkar fyrir metnaðarfullt erindi frá Félagi fjallaleiðsögumanna á Íslandi. Sveitarfélagið vinnur nú að þarfagreiningu fyrir nýja björgunarmiðstöð í Öræfum, samtal við nærsamfélagið í Öræfum er framundan á næstu vikum og óskar bæjarráð eftir því að hugmyndir úr erindinu verði teknar inn í það samtal og greiningu. Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram. |
|
|
|
| 13. 202510014 - Gjaldskrár sorphirðu, sorpeyðingar og söfnunarstöð úrgangs |
Minnisblað umhverfisfulltrúa varðandi ábendingar frá Hringrás varðandi söfnunarstöðina lagt fram.
|
| Fundað verður með Hringrás síðar í vikunni, bæjarráð óskar eftir kynningu og samantekt frá fundinum. |
|
| |
| Gestir |
| Hjördís Edda Olgeirsdóttir- Formaður umhverfis- og skipulagsnefndar. |
|
|
| 14. 202601049 - Stjórnsýslukæra UUA2601001 framkvæmdaleyfi jarðtæknirannsóknir Hoffelli |
Lögð var fram niðurstaða úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna stjórnsýslukæru vegna ákvörðunar sveitarfélagsins um að samþykkja umsókn um framkvæmdarleyfi fyrir jarðtæknirannsóknum við Hoffelslón.
Kærunni hefur verið vísað frá.
|
| Lagt fram til kynningar. |
| UUA2601001 Hoffellslón.pdf |
|
|
|