Fundargerðir

Fundargerðir

Til baka Prenta
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 280

Haldinn í ráðhúsi,
24.11.2025 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Skúli Ingólfsson formaður,
Halldór Tjörvi Einarsson varaformaður,
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður,
Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir aðalmaður,
Björgvin Óskar Sigurjónsson aðalmaður,
Kristján Reynir Ívarsson Fulltrúi ungmennaráðs,
Sigurjón Andrésson .
Fundargerð ritaði: Sigurjón Andrésson, hafnarstjóri / bæjarstjóri


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 202507042 - Ósk um Styrk í Björgunarskip
Leiðrétting bókunar - Styrkbeiðni vegna nýs björgunarskips
--------
Málið var tekið fyrir í kjölfar styrkbeiðni sem barst sveitarfélaginu 10. júlí 2025 frá Björgunarbátasjóð Hornafjarðar vegna þátttöku sjóðsins í fjármögnun nýs björgunarskips á Höfn.

Bæjarráð vísaði erindinu til hafnarstjórnar á fundi sínum 15. júlí. Skriflegt erindi hefur síðan borist frá Björgunarfélagi Hornafjarðar þar sem óskað er eftir skýringum á orðalagi bókunar hafnarstjórnar, einkum varðandi tilvísun til Björgunarfélags Hornafjarðar og áður veitts stuðnings.


Hafnarstjórn tekur fram að styrkbeiðnin sem vísað var til í bókun á fundi nr. 277 barst frá Björgunarbátasjóði Hornafjarðar, en ekki frá Björgunarfélagi Hornafjarðar. Það var því ekki heppilegt að blanda aðilunum saman í bókuninni og er það hér með leiðrétt og beðist velvirðingar á því.

Jafnframt er áréttað að sú samantekt sem fram kom í bókun hafnarstjórnar um stuðning sveitarfélagsins síðustu ár vísaði til heildarframlags Hornafjarðarhafnar og sveitarfélagsins til verkefna tengdum björgunarmálum, þ.m.t. uppbyggingu Björgunarmiðstöðvar og aðstöðu vegna nýs björgunarskips. Beiðni Björgunarfélags Hornafjarðar um nánari sundurliðun á þessum framlögum verður tekin til afgreiðslu og lögð fram skrifleg yfirlit þar um.

Í bókun fundar hafnarstjórnar 28.08.2025 kemur fram að styrkur til kaupa á nýrri Ingibjörgu sé til Björgunarfélags Hornafjarðar en hið rétt er að styrkurinn er til Björgunarbátasjóðs Hornafjarðar, kt. 640205-1560 og er um 5 milljónir króna á ári næstu 3 árin, 2026 til 2028.
Vísað til fjáhagsáætlunar 2026-2029.

Samþykkt samhljóða.
2. 202406082 - Dýpkun á Grynnslum 2025
Vegagerðin hefur unnið að undirbúningi útboðs vegna dýpkunar á Grynnslunum fyrir árin 2026-2028. Gert er ráð fyrir þremur dýpkunarlotum á tímabilinu og liggur áfram fyrir föst fjárheimild. Fyrirkomulag útboðsins verður óbreytt frá fyrri árum; Hornafjarðarhöfn verður verkkaupi og Vegagerðin mun endurgreiða verktakakostnað án virðisaukaskatts.

Eins og komið hefur fram í samráði við Vegagerðina er ein breyting frá fyrri útboðum, miðað við hvernig skurðurinn hefur haldist milli storma verður framkvæmdum hagað þannig að dýpkun fari fram að sumri til, auk þess sem gert er ráð fyrir breiðari rennu. Þessi útfærsla er talin auka öryggi og draga úr óhagkvæmri biðstöðu dýpkunarskips yfir vetrarmánuði.

Búið er að bjóða verkið út og opnun tilboða verður 16. desember nk.


Hafnarstjórn þakkar framlagðar upplýsingar Vegagerðarinnar um fyrirhugað útboð vegna dýpkunar á Grynnslunum fyrir árin 2026?2028. Fyrirkomulag útboðsins er að mestu óbreytt frá fyrri árum, með föstum fjárheimildum sem tryggja stöðugleika og fyrirsjáanleika dýpkunar næstu þrjú ár, sem er jákvætt.

Hafnarstjórn lýsir ánægju með gott samstarf við Vegagerðina.

Samþykkt samhljóða.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00 

Til baka Prenta