|
|
| 1. 2601001F - Ungmennaráð Hornafjarðar - 108 |
Fundargerð lögð fram til kynningar.
|
| Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir fundargerðina. |
|
| |
| Gestir |
| Emil Örn Morávek |
|
|
|
|
| 2. 202512054 - Áskoranir og hvatningar frá Sambandsþingi UMFÍ |
Lagt fram til kynningar og hvatningar.
|
Fræðslu- og frístundanefnd tekur undir hvatningu frá Sambandsþingi UMFÍ um að mikilvægt sé að efla lýðheilsu þjóðarinnar og að gott væri að hrinda af stað þjóðarátaki í lýðheilsu og forvörnum þar sem kraftar íþrótta- og ungmennafélagshreyfingarinnar verða nýttir til fulls.
Málinu vísað til umræðu í lýðheilsuráði og ungmennaráði. |
| Sveitarfélög, Sambandsþing 2025.pdf |
|
|
|
| 3. 202307021 - Skráningardagar í leikskóla |
Í kjölfar umræðu á síðasta fundi um skráningardaga var ákveðið að leggja könnun fyrir foreldra þar sem viðhorf þeirra til skráningardaga eru könnuð. Könnunin verður send út þegar búið er að kynna hana fyrir fræðslu- og frístundanefnd og foreldraráði Sjónarhóls. Drög að könnun lögð fyrir fundinn.
|
| Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir drögin og verður könnunin send út á næstu dögum. |
|
| |
| Gestir |
| Maríanna Jónsdóttir leikskólastjóri, Svava Kristín Þorsteinsdóttir fulltrúi starfsmanna og Sunna Jónsdóttir fulltrúi foreldra |
|
|
| 4. 202512047 - Brúum umönnunarbilið. Skýrsla og tillögur aðgerðahóps |
Skýrsla og tillögur aðgerðarhóps lagðar fram til kynningar.
Á Íslandi hefur verið byggt upp framsækið fæðingarorlofs- og leikskólakerfi. Þrátt fyrir það búa margar fjölskyldur við umönnunarbil á tímabilinu frá því að fæðingarorlofi lýkur þar til dagvistun fæst. Bæði fæðingarorlofskerfið og leikskólakerfið hafa verið efld á undanförnum áratugum og samhliða því hafa íslensk stjórnvöld færst nær því að brúa umönnunarbilið. Fæðingarorlof hefur verið lengt í áföngum í 12 mánuði og leikskólaplássum hefur fjölgað um 5.000 frá því í byrjun þessarar aldar, en nær öll fjölgunin er vegna barna á öðru og þriðja aldursári. Umönnunarbilið hefur áhrif á möguleika foreldra til atvinnuþátttöku og þ.a.l. tekjur foreldra. Áhrifin eru mun meiri á tekjur mæðra. Þá veldur umönnunarbilið álagi á barnafjölskyldur og takmarkar möguleika á samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs. Minni atvinnuþátttaka og ýmsar ráðstafanir foreldra til að brúa bilið hafa jafnframt margvísleg neikvæð áhrif á atvinnulífið. Umönnunarbilið hér á landi er í reynd utan ábyrgðasviðs bæði ríkis og sveitarfélaga. Þar sem enginn skilgreindur réttur er til leikskóladvalar er gat í stuðningskerfum við menntun, uppeldi og umönnun ungra barna frá því að fæðingarorlofi lýkur þar til grunnskólaganga hefst. Til að tryggja samfellu milli fæðingarorlofs og leikskóla er mikilvægt að ríki og sveitarfélög setji sér sameiginleg markmið um að brúa umönnunarbilið og skilgreini hlutverk hvors aðila í að ná þeim markmiðum. Aðgerðahópurinn lét vinna greiningu á þjóðhagslegum áhrifum mismunandi sviðsmynda sem miða að því að brúa umönnunarbilið. Samfélagslegur ábati af því að tryggja börnum rétt til leikskólavistar við 12 mánaða aldur er metinn samtals 11 ma.kr. en samfélagslegur ábati þess að lengja fæðingarorlof í 18 mánuði er metinn neikvæður um 6,1 milljarða króna.
|
Aðgerðahópurinn leggur til áætlun um að brúa umönnunarbilið með því að tryggja börnum leikskólapláss eftir að fæðingarorlofi lýkur. Tillögur hópsins miða að þessu og fela í sér að réttur barna til leikskólavistar verði lögfestur, leikskólastigið verði styrkt með markvissum aðgerðum og að mótuð verði heildstæð stefna um stuðning og þjónustu við fjölskyldur ungra barna. Áskoranir útvíkkaðs leikskólakerfis, þar sem börnum er tryggður réttur til leikskólavistar, verða þó sambærilegar núverandi áskorunum, ekki síst hvað varðar mönnun. Mönnun leikskóla er lykilþáttur í því að brúa umönnunarbilið. Átak um fjölgun kennara á síðustu árum hefur skilað árangri og tryggja þarf að sú þróun haldi áfram. Einnig þarf að horfa til þess að nám leikskólakennara á Íslandi er lengra en á öðrum Norðurlöndum og að leikskólakennarar eru eina fagstéttin sem er skilgreind í lögum um leikskóla. Mikilvægt er að efla aðrar uppeldismenntaðar starfstéttir sem starfa með leikskólakennurum, efla námstækifæri þeirra og fjölga þeim í starfsliði leikskólanna. Mál lagt fram til kynningar.
|
| Skýrsla aðgerðahóps um brúun umönnunarbilsins.pdf |
|
|
|
| 5. 202511083 - Spjall við nýjan skólameistara FAS |
Guðjón Ragnar Jónasson var ráðinn skólameistari við FAS í byrjun nóvember. Hann hefur sýnt mikinn áhuga á samstarfi við sveitarfélagið og langar m.a. að ræða við fræðslu- og frístundanefnd um eflingu iðnnáms í Hornafirði og fjölmenningarsamfélagið Hornafjörð.
|
Fræðslu- og frístundanefnd þakkar Guðjóni kærlega fyrir heimsóknina. Veruleg fjölgun hefur orðið í fjarnámi í FAS og staðnemum hefur heldur fjölgað. Íslenskunám fyrir íbúa af erlendum uppruna fer vel af stað nú eftir áramótin og hugmyndir eru um að víkka það enn meira út næsta haust enda er um verulega stóran markhóp að ræða. Þá leggur Guðjón áherslu á samstarf við atvinnulífið og eflingu iðnnáms. Guðjón kynnti hugmyndir sem snúa að auknu námsframboði í framtíðinni og það verður spennandi að fylgjast með.
|
|
| |
| Gestir |
| Guðjón Ragnar Jónasson |
|
|
| 6. 202212048 - Seinkun skólabyrjunar |
Í fyrstu aðgerðaráætlun sveitarfélagsins var m.a. að áeggjan fræðslu- og frístundanefndar hvatt til seinkunnar skólabyrjunar. Í niðurstöðum Barna og ungmennaþings var seinkun skólabyrjunar eitt af þeim málum sem var ofarlega í huga nemenda. Á fundinum verður farið yfir stöðuna varðandi seinkun skólabyrjunar.
|
| Farið yfir stöðu málsins, þau sjónarmið sem skipta máli og mikilvægi samráðs. Fræðslu- og frístundanefnd þakkar fyrir upplýsandi samtal. |
|
| |
| Gestir |
| Þórdís Þórsdóttir skólastjóri Grunnskóla Hornafjarðar, Halldóra Guðmundsdóttir fulltrúi kennara og Inga Rósa Ingvadóttir fulltrúi foreldra |
|
|
| 7. 202502009 - Starfshópur um húsnæðismál Grunnskóla Hornafjarðar |
Starfshópur um húsnæðismál Grunnskóla Hornafjarðar hefur nú lokið störfum og skilað inn lokaskýrslu. Lokaskýrslan lögð fram til kynningar ásamt síðustu fundagerð hópsins.
|
Starfshópurinn var einskonar spretthópur sem hóf störf í september og skilar nú lokaskýrslu. Í niðurstöðum sínum leggur hópurinn áherslu á þrjú atriði. 1. Það er komin tími til að endurbæta húsnæði Grunnskóla Hornafjarðar. Í Hafnarskóla er þörfin brýnni. 2. Horfa skyldi á uppbyggingu Grunnskóla Hornafjarðar við Heppuskóla. 3. Það er mikilvægt að skipuleggja skólasvæðið vel og leggja áherslu á að það tali vel við þau íþróttamannvirki sem fyrirhugað er að byggja á svæðinu. Íþróttahús og sundlaug eru jú alltaf hluti af skólahúsnæðinu. Fræðslu- og frístundanefnd þakkar starfshópnum fyrir greinagóða skýrslu og vísar henni til umfjöllunar í bæjarráði.
|
| 7. fundur þriðjudaginn 20. janúar 2026.pdf |
|
| |
| Gestir |
| Þórdís Þórsdóttir skólastjóri Grunnskóla Hornafjarðar, Halldóra Guðmundsdóttir fulltrúi kennara og Inga Rósa Ingvadóttir fulltrúi foreldra |
|
|
| 8. 202408018 - Fríar skólamáltíðir |
Mál lagt fram til kynningar.
Vorið 2024 kom sameiginleg yfirlýsing frá ríkisstjórninni og Sambandi íslenskra sveitarfélagi um að hafa fríar skólamáltíðir í grunnskólum. Markmið þessarar yfirlýsingar var m.a.a að greiða fyrir langtímakjarasamningi á vinnumarkmaði. Um þriggja ára verkefni er að ræða. Sambandið hefur nú tekið saman reynsluna að loknu fyrsta skólaári og má sjá hana í þessari skýrslu.
Þess má geta að á síðasta skólaári voru um 97,5% nemenda í mat í skólanum og núna eru það heldur fleiri eða 98,3%
|
Í könnun Sambandsins kemur fram að hlutdeild sveitarfélaga í kostnaði við skólamáltíðir er að meðaltali 53%. Í áætlun síðast vors var gert ráð fyrir að kostnaður Sveitarfélagsins Hornafjarðar yrði á svipuðu róli á yfirstandandi skólaári.
|
| Gjaldfrjálsar skólamáltíðir - kynning í nóv 2025.pdf |
|
|
|
| 9. 202512034 - Lykiltölur úr rekstri grunnskóla 2024 - myndræn framsetning |
Árlega birtir Samband íslenskra sveitarfélag tölulegar upplýsingar er varða rekstur sveitarfélaga. Nú hafa flestar rekstrarupplýsingar fyrir árið 2024 verið birtar. Upplýsingarnar eru settar fram í mismunandi mælaborðum sem sjá má á þessari vefslóð https://www.samband.is/maelabord. Hluti af mælaborðunum er myndræn framsetning á rekstrarkostnaði grunn- og leikskóla.
|
| Lagt fram til kynningar. |
| Grunnskólinn rekstrarkostnaður 2024 myndræn framsetning.pdf |
|
|
|
| 10. 202301036 - Hornafjörður náttúrulega |
Kynningu og samráði vegna endurskoðaðrar stefnu sveitarfélagsins, Hornafjörður Náttúrulega!, er nú lokið eftir fjögurra vikna kynningar- og umsagnaferli. Lagt fram til umræðu og umfjöllunnar.
|
| Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir stefnuna. |
|
|
|
| 11. 202512087 - Verkefnastyrkir hjá atvinnu- og menningarmálanefnd og fræðslu- og frístundanefnd 2025-26 |
Farið yfir þær styrkveitingar sem borist hafa.
|
| Nefndarfólk hefur næstu tvær vikur til að meta umsóknir út frá þar til gerðu matsblaði og skilar matinu til starfsmanns nefndar eigi síðar en 4. febrúar. Í kjölfarið munu nefndirnar funda saman og komast að sameiginlegri niðurstöðu um úthlutun. |
|
|
|
| 12. 202402127 - Íþróttahús - hönnun |
Nokkuð er síðan rætt hefur verið um byggingu nýs íþróttahúss í fræðslu- og frístundanefnd og þar sem formaður stýrihóps hefur tekið við formennsku í fræðslu- og frístundanefnd er tilvalið að fá upprifjun.
|
| Fundargerðir lagðar fram til kynningar. |
|
|
|
| 13. 202506079 - Farsældarráð á Suðurlandi |
Sveitarfélagið hefur sent frá sér tilefningu í farsældarráð Suðurlands sem er nú lögð fyrir velferðarnefnd til kynningar. Sveitarfélagið tilnefndi Þórgunni Torfadóttur, sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs sem aðalfulltrúa sveitarfélagsins og Skúla Ingiberg Þórarinsson, sviðsstjóra velferðarsviðs til vara.
|
Mál lagt fram til kynningar.
|
|
|
|
| 14. 202303011 - Ungmennaráð - Fræðslu- og frístundanefnd |
Á fundi ungmennaráðs 8. janúar 2026 býður ungmennaráð fræðslu- og frístundanefnd til fundar með sér mánudaginn 2. febrúar. Markmið fundarins er að ræða málefni er varða ungmennaráð og fræðslu- og frístundarsvið sem og þau verkefni sem ungmennaráð vill sjá komast til framkvæmda.
|
| Fræðslu- og frístundanefnd þiggur boð ungmennaráðs og hlakkar til fundarins. |
|
|
|