Sveitarstjórnarkosningar 2026

Boðað hefur verið til sveitarstjórnarkosninga laugardaginn 16. maí 2026.

7.5.2026

Upplýsingar vegna Sveitarstjórnarkosninga þann 16. maí 2026

Hvar á ég að kjósa ?

Í Sveitarfélaginu Hornafirði verður kosið á fjórum stöðum og hér fyrir neðan má sjá upplýsingar um kjörfundi:

Kjördeild Staðsetning Opnunartími 
 Kjördeild I - Öræfi Hofgarður kl. 10:00 - 18:00
 Kjördeild II - Suðursveit Hrollaugsstaðir kl. 10:00 - 18:00
 Kjördeild III - Mýrar Holt kl. 10:00 - 18:00
 Kjördeild V - Höfn Heppuskóli kl. 9:00 - 19:00

Athugið að íbúar í Lóni og Nesjum greiða atkvæði í Kjördeild V Höfn

Kjósendur eru hvattir til að kynna sér hvar þeirra kjörstaður og kjördeild er áður en haldið er á kjörstað. Upplýsingar um það má nálgast á vef Þjóðskrár.

Kjósendur eru beðnir um að hafa með skilríki á kjörstað. 

Yfirkjörstjórn mun hafa aðsetur í Heppuskóla á kjördag og þar verða einnig atkvæði talin. Gert er ráð fyrir að talning atkvæða hefst um kl 21:00 á kjördegi. Úrslit kosninganna munu svo liggja fyrir síðar um kvöldið.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla

Ef það eru einhverjir sem vita að þeir eru ekki heima á kjördag er þeim bent á að hægt er að kjósa hjá sýslumönnum um land allt. Upplýsingar um staðsetningu og opnunartíma sýslumanna er að finna á vef Sýslumanna.

Frekari upplýsingar er varða kosningar má finna á Sveitarstjórnarkosningar 2026 | Ísland.is.

Yfirkjörstjórn:
Vignir Júlíusson
Hjördís Skírnisdóttir
Kristján Sigurður Guðnason