Aðalskipulag og deiliskipulag að Borgarhöfn

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar auglýsir hér með tillögu að breytingu á aðalskipulagi 2012-2030 samkvæmt 1. mgr. 36. gr. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og tillögu að nýju deiliskipulagi að Borgarhöfn

Markmið með aðalskipulagsbreytingunni er að breyta landnotkun á hluta lögbýlisins úr landbúnaðarsvæði í verslunar- og þjónustusvæði á um 5 ha. svæði.

Meginmarkmið með deiliskipulaginu er að skilgreina tjaldsvæði, byggingarreit fyrir smáhýsi og lóðir og byggingarreiti fyrir frístundahús. Áform eru að efla ferðaþjónustu á svæðinu og bjóða uppá möguleika til gistingar og afleidda þjónustu.

Tillögurnar verða til sýnis frá og með 16. ágúst 2021 til 27. september 2021 anddyri Ráðhúss Hafnarbraut 28, 780 Höfn og aðalskipulagstillagan verður til sýnis hjá Skipulagsstofnun að Borgartúni 7 b 105 Reykjavík.

Aðalskipulagsbreyting uppdráttur og greinargerð

Deiliskipulag uppdráttur og greinargerð

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögur til 27. september 2021. Skila skal athugasemdum á bæjarskrifstofur Hornafjarðar, Hafnarbraut 27 eða á netfangið skipulag@hornafjordur.is.

Brynja Dögg Ingólfsdóttir

umhverfis- og skipulagsstjóri

Sveitarfélagsins Hornafjarðar