Breyting á aðalskipulagi – Seljavellir III

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti þann 14. janúar 2021 að auglýsa lýsingu vegna breytingar á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010

Breytingin felur í sér að gert verði ráð fyrir 40 gistirýmum með allt að 80 gestum á 9 ha. svæði á reit VÞ 10.

Greinargerð og uppdráttur

Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir umsögnum vegna lýsingu á aðalskipulagsbreytingu skv. skipulagslögum. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 1. febrúar 2021 og skal skila skriflega á bæjarskrifstofur Hornafjarðar, Hafnarbraut 27, 780 Höfn eða á netfangið skipulag@hornafjordur.is

Brynja Dögg Ingólfsdóttir

Umhverfis- og skipulagsstjóri