Deiliskipulag fyrir Brunnhól

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti á fundi sínum þann 12. október 2017 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Brunnhól.

Deiliskipulagið  nær yfir um 10 ha. landspildu úr landi Brunnhóls og Árbæ í Sveitarfélaginu Hornafirði. Deiliskipulagið tekur til stækkunar og breytinga á núverandi gistihúsi/íbúðarhúsi ásamt aðkomu frá þjóðvegi. 

Deiliskipulagstillagan ásamt greinargerð verður til kynningar í Ráðhúsi sveitarfélagsins að Hafnarbraut 27, 780 Höfn, frá 19. október 2017 til 1. desember 2017.

Deiliskipulagstillaga.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við deiliskipulagstillöguna. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 1. desember og skal skila skriflega á bæjarskrifstofur Hornafjarðar Hafnarbraut 27, 780 Höfn eða á netfangið skipulag@hornafjordur.is.

Gunnlaugur Róbertsson, skipulagsstjóri