Grenndarkynning – Bjarnahóll 8 og 9

Grenndarkynning – Bjarnahóll 8 og 9 skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Óskað hefur verið heimildar til að breyta fyrirkomulagi á sameiginlegumhluta lóða Bjarnarhós 8 og 9.

Gert er ráð fyrir að sameignarhluta lóðanna verði skipt upp og göngustígur muni liggja óbreyttur á milli lóðanna. 

Gert verður ráð fyrir bílageymslu fyrir lóða Bjarnarhóls 8 við lóðamörk við hús nr. 1 en bílageymsla fyrir lóð nr. 9 verður innan lóðar. 

Uppdráttur BJARNAHOLL-8-9-Taka-3_A4-L

Þar sem ekki liggur fyrir staðfest deiliskipulag af svæðinu er hagsmunaaðilum gefinn kostur á að tjá sig um fyrirhugaðar framkvæmdir og skal athugasemdum komið til skila á netfangið skipulag@hornafjordur.is eigi síðar en 24. júní 2021.

Nánari upplýsingar og teikningar má finna á www.hornafjordur.is undir skipulag í kynningu.