Grenndarkynning – Krosseyjarvegur 6

Óskað hefur verið heimildar til að byggja úrgangsolíugeymi á lóð Krosseyjarvegur 6. 

Fyrirhugað er að koma fyrir 60m³ tvöföldum stálgeymi við hlið áfylliplans stöðvarinnar og lagnir tengdar frá geymi inn á planið. 

Uppdráttur

Þar sem ekki liggur fyrir staðfest deiliskipulag af svæðinu er hagsmunaaðilum gefinn kostur á að tjá sig um fyrirhugaðar framkvæmdir skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010og skal athugasemdum komið til skila á netfangið skipulag@hornafjordur.is eigi síðar en 15. júlí 2021.