Óveruleg breyting á aðalskipulagi

Óveruleg breyting á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 að Hafnarnesi. 

Bæjarstjórn Hornafjarðar samþykkti 10. sept. 2020 tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í því að breytt er flatarmáli verslunar- og þjónustusvæðis VÞ. 40 úr 750 m2 í 3000 m2.

Breytingin hefur verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til umhverfis- og skipulagsstjóra sveitarfélagsins.

Brynja Dögg Ingólfsdóttir,

umhverfis- og skipulagsstjóri.