Óveruleg breyting á aðalskipulagi - Hnappavellir

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti 20. ágúst 2020 tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Hornafjarðar 2012-2030 samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Breytingin felst í því að heimilaður herbergjafjöldi verði færður úr 120 herbergjum í 125 herbergi.

Breytingin hefur verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til umhverfis- og skipulagsstjóra.

Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagsstjóri