Tillaga að breytingu á deiliskipulagi, Lambleiksstaðir

Bæjarstjórn auglýsir tillögu að breytingu á deiliskipulagi Lambleiksstaða samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Markmið með breytingu á deiliskipulagi fyrir Lambleiksstaði er að efla byggð og styrkja atvinnulíf. Ferðaþjónusta hefur lengi verið á Lambleiksstöðum og með gerð þessarar breytingar er rekstrargrundvöllur styrktur, skipulagssvæðið stækkað og skipt í byggingarreiti A-D hver með sína húsaþyrpingu. Breytingin á deiliskipulaginu tekur til frekari uppbyggingar á gistiaðstöðu og nýbygginga fyrir ferðaþjónustu. Tillagan var áður auglýst sumarið 2019.

Breytingartillagan verður til sýnis á bæjarskrifstofum að Hafnarbraut 27 og á heimasíðu sveitarfélagsins frá og með fimmtudeginum 18. febrúar 2021 til og með föstudeginum 2. apríl 2021.

Deiliskipulagstillaga

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við skipulagið til 2. apríl 2021. Skila skal athugasemdum á bæjarskrifstofur Sveitarfélagsins Hornafjarðar, Hafnarbraut 27 eða á netfangið skipulag@hornafjordur.is.

Brynja Dögg Ingólfsdóttir

umhverfis- og skiplagsstjóri