Fundargerðir

Fundargerðir

Til baka Prenta
Fræðslu- og frístundanefnd - 125

Haldinn í ráðhúsi,
14.05.2025 og hófst hann kl. 16:15
Fundinn sátu: Róslín Alma Valdemarsdóttir formaður,
Þóra Björg Gísladóttir varaformaður,
Steindór Sigurjónsson aðalmaður,
Kristján Örn Ebenezersson aðalmaður,
Gunnhildur Imsland aðalmaður,
Þórgunnur Torfadóttir .
Fundargerð ritaði: Þórgunnur Torfadóttir, sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs


Dagskrá: 
Fundargerðir til staðfestingar
11. 2504021F - Ungmennaráð Hornafjarðar - 102
Fundargerð ungmennaráðs lögð fram.

Fræðslu- og frístundanefnd staðfestir fundargerðina og þakkar Emil fyrir komuna.
 
Gestir
Emil Morávek verkefnastjóri á fræðslu- og frístundasviði.
Almenn mál
1. 202504034 - Ársskýrsla Golfklúbbs Hornafjarðar 2025
Halldóra Guðmundsdóttir formaður Golfklúbbs Hornafjarðar fylgir ársskýrslu félagsins úr hlaði.

Fram kom að áhugi er á stækkun vallarins í 12 holu völl og golfklúbburinn hefur fengið vilyrði frá arkitektinum sem hannaði völlinn upphaflega um að hanna stækkun hans en hún yrði þá í kringum fyrirhugaða stækkun göngustígsins. Golfklúbburinn sendi bæjarráði og bæjarstjóra bréf um þetta og fleira og bíður svara. Fræðslu- og frístundanefnd þakkar Halldóru fyrir góða kynningu og óskar Golfklúbbi Hornafjarðar til hamingju með fyrirmyndarstarf.
ársreikningur GHH 2024.pdf
Ársskýrsla 2024 aðalfundur20 mars.pdf
 
Gestir
Halldóra Guðmundsdóttir formaður Golfkúbbs Hornafjarðar
2. 202505007 - Ársskýrsla Sindra 2024
Margrét Kristinsdóttir framkvæmdastjóri fylgir ársskýrslu Sindra úr hlaði.

Starfið hjá umf. Sindra var öflugt á síðasta ári og félagið skilaði hagstæðum ársreikningum. Fræðslu- og frístundanefnd óskar félaginu til hamingju með fyrirmyndarstarf og mikinn viðsnúning á síðustu tveimur árum. Nokkrar lagabreytingar áttu sér stað á síðast aðalfundi félagsins sem vonir standa til að eigi eftir að skila enn betra starfi. Margrét mun fyrir hönd aðastjórnar Sindra taka að sér leikjanámskeið Sindra í sumar en yngri flokka stjórn knd. Sindra hefur látið leikjanámskeiðin frá sér og engin önnur deild treystir sér til að taka það að sér. Fræðslu- og frístundanefnd þakkar Margréti fyrir góða kynningu og fyrir samstarfið undanfarin ár en hún lætur af störfum sem framkvæmdastjóri í sumar.
Arsskyrsla-2024- .pdf
 
Gestir
Margrét Kristinsdóttir framkvæmdastjóri Sindra
3. 202504071 - Fjallahjólabraut á gömlu krossarabrautinni við Drápskletta
Hólmar H Unnsteinsson sendi á dögunum inn erindi til sveitarfélagsins um að nýta gömlu krossarabrautina við Drápskletta sem fjallahjólabraut.

Umhverfis- og skipulagsnefnd tók málið fyrir í síðustu viku og var starfsmönnum falið að vinna áfram í málinu. Fræðslu- og frístundanefnd líst vel á þessa hugmynd en tekur undir afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar og telur að málið sé í réttum farvegi hjá umhverfis og skipulagssviði.
4. 202403047 - Lög um inngildandi menntun
Í lok apríl sl. héldu stjórnendur í fræðslu- og velferðarþjónustu á landinu vorfundi sína hér á Höfn. Á fundunum kom fram að brýnt ákall til mennta- og barnamálaráðherra og stjórnenda í menntamálum á landinum um að staðfesta frumvarp til laga um inngildandi menntun sem lagt var fyrir Alþing í mars 2024. Þetta ákall kom einnig fram á vorráðstefnu Ráðgjafar og greiningarstöðvarinnar. Þessi lög eru forsenda þess að hægt verði að halda áfram með ýmis áríðandi verkefni í skólaþróun s.s. samþættingu við farsældarlögin, þróun námsgagna en síðast og ekki síst þróun stuðningskerfis hjá MMS við skólaþjónustu í landinu, bæði almenna og sértæka.
Fræðslustjórar landsins voru hvattir til að ýta á pólitíkina í hverju sveitarfélagi fyrir sig til að þrýsta á að koma þessu frumvarpi í gegn.


Fræðslu- og frístundanefnd tekur undir með stjórnendum í fræðslu- og velferðaþjónustu að mikilvægt sé að staðfesta frumvarp um inngildandi menntun á Alþingi.
5. 202409013 - Skólamáltíðir útboð 2025
Útboð á skólamáltíðum hefur gegnið brösulega. Tvær kærur hafa borist vegna útboðsins og beðið er eftir niðurstöðum kærunefndar útboðsmála. Vonast er til að hægt verði að opna útboð 20. maí.

Mál lagt fram til kynningar.
6. 202504046 - Fjallamennskunám í Öræfum
Eyrún Fríða Árnadóttir fer yfir þær umræður sem átt hafa sér stað um að vista fjallamenskunámið í Hofgarði.

Aðstandendur fjallamennskunámsins eru að vinna í því að halda náminu í héraði og sveitarfélagið hefur heimilað þeim að hafa lögheimili í Grunnskólanum í Hofgarði því námið þarf að hafa aðsetur í löggiltu skólahúsnæði. Eyrún Fríða fór yfir stöðu málsins og Áróra sagði að hún væri í góðu samtali við aðstandendur þess. Fræðslu- og frístundanefnd lýsir yfir ánægju með að fjallamennskunámið haldist í sýslunni og óskar aðstandendum þess alls hins besta.
 
Gestir
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður bæjarráðs og Áróra Gústafsdóttir skólastjóri í Hofgarði á teams
7. 202312038 - HeimaHöfn - Ungt fólk og efling byggða
Eyrún Fríða Árnadóttir fer yfir stöðu verkefnisins

HeimaHöfn er verkefni sem snýst um að efla tengsl ungs fólks við heimaslóðir og hvetja það til að skoða möguleika á framtíðarstarfi og framtíðarbúsetu á heimaslóðum. Verkefnið var hugsað til þriggja ára til að byrja með og nú er fyrsta árinu að ljúka. Verkefnið hefur opnað heimasíðu https://heimahofn.is/ þar sem nálgast má ýmsar upplýsingar um verkefnið. Í haust verður málþing um verkefnið þar sem fulltrúum annarra sveitarfélaga verður boðið að koma ásamt fulltrúum þekkingarsetra og fleirum. Fræðslu- og frístundanefnd þakkar Eyrúnu Fríðu fyrir góða kynningu á verkefni sem er þarft, áhugavert og valdeflandi fyrir ungt fólk á svæðinu en mun einnig styrkja sveitarfélagið þegar fram í sækir.
 
Gestir
Eyrún Fríða Árnadóttir starfsmaður Nýheima þekkingaseturs
8. 202402127 - Íþróttahús - hönnun
35. fundargerð stýrihóps um íþróttamannvirki lögð fram.

Meirihluti fræðslu- og frístundanefndar fagnar bókun meirihluta stýrihóps um byggingu nýs íþróttahúss en á 35. fundi stýrihópsins er lagt til að bæjarstjórn samþykki að húsið verði byggt við Víkurbraut. Fulltrúi minnihlutans tekur hins vegar undir bókun minnihlutans í stýrihóp sem leggur áherslu á að skoða hefði átt betur möguleika á viðbyggingu við gamla íþróttahúsið. Nefndin þakkar Eyrúnu Fríðu fyrir kynninguna og komuna.
 
Gestir
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður stýrihóps.
9. 202504029 - Vallarstjórn 2025
Fundargerð vallarstjórnar tekin fyrir.

Emil og Gunnar Ingi fóru yfir stöðuna á vallarmálum sem eru að mörgu leyti góð þetta vorið þó enn megi úr ýmsu bæta eins og fram kemur í fundargerð. Nú er verið að setja saman vallarhúsið við hliðina á Bárunni sem mun það verða klárt í næstu viku. Það mun breyta mikið aðstöðu til fyrir útitæki og umhirðu vallar en einnig mun það nýtast vinnuskólanum. Þá verður spennandi að sjá nýjar stúkur við knattspyrnuvöllinn en þær eiga að koma í sumar. Fræðslu- og frístundanefnd þakkar Emil og Gunnari Inga fyrir gott samtal.
06.05.2025.1.pdf
 
Gestir
Emil Morávek verkefnastjóri á fræðslu- og frístundasviði og Gunnar Ingi Valgeirsson forstöðumaður íþróttamannvirkja.
Kristján Örn Ebenezersson vék af fundi á meðan á afgreiðslu máls stóð.
10. 202503101 - Tækniævintýri fyrir unga forritara- ósk um styrk
Óskað var eftir framlagi frá bæjarráði til að halda námskeið fyrir börn á aldrinum 6-14 ára þar sem þau fá að kynnast grunnatriðum forritunar á leikrænan og uppbyggilegan hátt. Sviðsstjóra var falið að hafa samband við málsaðila og óska eftir frekari upplýsingum.

Fræðslu- og frístundanefnd telur verkefnið spennandi og eftirsóknarvert ef það gæti þá skilið eftir sig þekkingu hjá leiðbeinendum á svæðinu sem gætu haldið áfram að vinna með leikjaforritun á uppbyggilegan hátt. Starfsmanni falið að leita eftir áhuga hjá skólum, rafíþróttadeildi og fablab og athuga með áhuga á leiðbeinendanámskeiði. Slíkt námskeið gæti jafnvel verið samhliða námskeiði fyrir börn. Í framhaldinu verði athugað með fjármögnun.
 
Gestir
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:15 

Til baka Prenta