|
Fundinn sátu: Hjördís Edda Olgeirsdóttir aðalmaður, Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir aðalmaður, Steindór Sigurjónsson aðalmaður, Gunnar Ásgeirsson aðalmaður, Sigrún Sigurgeirsdóttir formaður, Selma Ýr Ívarsdóttir Fulltrúi ungmennaráðs, Kristín Vala Þrastardóttir Menningarmiðstöð. |
|
Fundargerð ritaði: Kristín Vala Þrastardóttir, Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar |
|
|
|
1. 202003090 - Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir stjórnar og svæðisráðs |
Fundargerðir svæðistjórnar Suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs hafa fundað og fjórar fundargerðir hafa nýlega birst á vef þjóðgarðsins, engar fundagerðir fyrir stjórn þjóðgarðsins hafa verið birtar á vefnum.
|
Lagt fram til kynningar. |
VJP_139_svæðisráð_suður.pdf |
VJP_140_svæðisráð_suður.pdf |
VJP_141_svæðisráð_suður.pdf |
VJP_142_svæðisráð_suður.pdf |
|
|
|
|
|
2. 202505109 - Upplýsingaöflun í Sveitafélaginu Hornafirði |
Nejra, byggða- og nýsköpunarfulltrúi Sveitarfélagsins kynnir fyrirhuguð verkefni í upplýsingaöflun fyrir sveitarfélagið.
|
Nefndin þakkar Nejru fyrir greinargóða kynningu og hlakkar til að heyra niðurstöður þegar búið er að safna gögnum. |
|
|
Gestir |
Nejra Mesetovic |
|
|
3. 202110002 - Fjölmenning í Sveitarfélaginu Hornafirði |
Anna Birna Elvarsdóttir, fjölmenningarfulltrúi Sveitarfélagsins, kynnir nýjar upplýsingar og tölfræði varðandi erlenda íbúa í Sveitarfélaginu Hornafirði.
|
Nefndin þakkar Önnu Birnu fyrir greinargóða kynningu og tekur undir orð hennar: "Í Sveitarfélaginu Hornafirði býr fólk frá 48 löndum og saman mynda íbúarnir fjölbreytt og líflegt samfélag þar sem ólík sjónarhorn, reynsla og tungumál fléttast saman og styrkja heildina. Þessi fjölbreytileiki skiptir máli og við ættum að nýta okkur hann því hann eykur skilning, víkkar sjóndeildarhringinn og gerir samfélagið sterkara og betra fyrir okkur öll."
Nefndin hvetur vinnuveitendur til að upplýsa starfsfólk um réttindi sín. Í máli Önnu Birnu kom fram að fjöldi erlendra íbúa geti verið ofmetinn vegna þess að sumir skrá sig ekki úr landi þegar þeir flytja í burtu. Hvetur því nefndin vinnuveitendur til að benda fólki á mikilvægi þess að tilkynna til sig til þjóðskrár þegar flutt er í burtu. |
|
|
Gestir |
Anna Birna Elvarsdóttir |
|
|
4. 202505070 - Samstarfsbeiðni - Graffíll listahátíð unga fólksins |
Bæjarráð hefur samþykkt innsenda samstarfsbeiðni frá ungmennum í FAS vegna Graffíls, listahátíðar unga fólksins. Bæjarráð samþykkir styrkbeiðni að upphæð 2.500.000 kr. og tilnefnir einnig Kristínu Völu Þrastardóttur forstöðumann Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar sem fulltrúa í stjórn og prófkúruhafa félagsins.
|
Nefndin þakkar unga fólkinu fyrir frumkvæðið og metnaðarfullt verkefni og hvetur önnur ungmenni til að taka þátt í Graffíl, listahátíð unga fólksins, sem fram fer á Höfn í júlí í sumar. |
|
|
|
5. 202409071 - Menningarmiðstöð |
Forstöðumaður kynnir starf menningarmiðstöðvar og leiðir nefndarmenn um Gömlubúð og kynnir sýningar og starfsemi sumarsins.
Sjómannadagurinn næstu helgi - glæsileg dagskrá sjómannadagskráðs. Opnun Gömlubúðar laugardaginn 31. maí kl.12-16. Öll velkomin í kaffi, sýningar og Ekrubandið tekur sjómannalögin fyrir okkur kl.15. Gamlabúð verður opin í allt sumar milli kl.14-20.
|
Nefndin þakkar Kristínu fyrir greinagóða kynningu og hvetur íbúa til að fjölmenna á opnun Gömlubúðar núna á laugardaginn, 31. maí kl.12-16.
Nefndin vill einnig nýta tækifærið og óska Hlyni Pálmasyni og öðrum aðstandendum kvikmyndarinnar "Ástin sem eftir er" til hamingju með að vera fyrsta íslenska kvikmyndin til að vera valin í Premiere flokk kvikmyndahátíðarinnar í Cannes. Það er ánægjulegt þegar íbúum sveitarfélagsins gengur vel í því sem þeir taka sér fyrir hendur. |
|
|
|
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00 |