Fundargerðir

Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 336

Haldinn í ráðhúsi,
15.05.2025 og hófst hann kl. 15:00
Fundinn sátu: Gauti Árnason aðalmaður,
Hjördís Edda Olgeirsdóttir aðalmaður,
Tinna Rut Sigurðardóttir 1. varamaður,
Eyrún Fríða Árnadóttir aðalmaður,
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður,
Björgvin Óskar Sigurjónsson aðalmaður,
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir 2. varamaður,
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri, Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs, Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi.
Fundargerð ritaði: Arndís Lára Kolbrúnardóttir, stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Forseti lagði til að fundargerðir bæjarstjórnar númer 334 og 335 verði lagðar fyrir fundinn til kynningar en fyrirfórst að setja fundargerðirnar inn í auglýsta dagskrá fundarins.

Samþykkt með sjö atkvæðum.


Dagskrá: 
Fundargerðir til staðfestingar
1. 2504011F - Bæjarráð Hornafjarðar - 1171
Tinna Rut Sigurðardóttir tók til máls undir lið númer 3 - Fjallamennskunám í Öræfum og undir lið númer 4 - Íþróttavöllur á Hrollaugsstöðum.

Mál tekið fyrir á mínútu 3:10 í upptöku



Lagt fram til umræðu og kynningar.
2. 2504013F - Bæjarráð Hornafjarðar - 1172
Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls undir lið númer 1 Fræðslu- og frístundanefnd - 124, liður númer 1 - Hönnun.Stækkun leikskóla á Hornafirði - Sjónarhóll. Einnig tók hún til máls undir lið númer 3 - Atvinnu- og menningarmálanefnd - 75, liður númer 1 - Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir stjórnar og svæðisráðs.

Hjördís Edda Olgeirsdóttir tók til máls undir lið númer 3 - Atvinnu- og menningarmálanefnd - 75, liður númer 5 - Menningarmiðstöð.

Tinna Rut Sigurðardóttir tók til máls undir lið númer 10 - Mánavöllur - beiðni um úrbætur.

Til máls tók Sigurjón Andrésson til andsvars Ásgerðar Kristínar Gylfadóttur.

Ásgerður Kristín Gylfadóttir til andsvars og tók hún einnig til máls undir lið númer 3 - Atvinnu- og menningarmálanefnd - 75, liður númer 2 - Nýjar heimasíður fyrir sveitarfélagið og stofnanir og lið númer 4 - Jöklaleiðin 2025.

Hjördís Edda Olgeirsdóttir til andsvars.

Eyrún Fríða Árnadóttir til andsvars.

Sigurjón Andrésson til andsvars.

Mál tekið fyrir á mínútu 6:20 í upptöku.



Lagt fram til umræðu og kynningar.
3. 2504022F - Bæjarráð Hornafjarðar - 1173
Tinna Rut Sigurðardóttir tók til máls undir lið númer 1 - Hafnarstjórn Hornafjarðar -274, lið númer 2 - Ósk um leyfi fyrir jeppasýningu.

Mál tekið fyrir á mínútu 25:15 í upptöku




Lagt fram til umræðu og kynningar.
4. 2505004F - Bæjarráð Hornafjarðar - 1174
Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls undir lið númer 1 - Umhverfis- og skipulagsnefnd - 98, lið númer 5 - Fjallahjólabraut á gömlu krossarabrautinni við Drápskletta, undir lið númer 6 - Útihirslur í almenningsrýmum og undir liðum númer 7 - Umferðaröryggisáætlun - Endurskoðun - 2025 og númer 8 - Ábending um umferðaröryggi í Álaleiru og Hagaleiru. Einnig tók hún til máls undir lið númer 11 - Deiliskipulag við Hrollaugsstaði. Sigurjón Andrésson til andsvars.

Mál tekið fyrir á mínútu 26:55 í upptöku.


Lagt fram til umræðu og kynningar.
5. 2504020F - Bæjarstjórn Hornafjarðar - 335
Mál tekið fyrir á mínútu 39:40 í upptöku

Lagt fram til umræðu og kynningar.
6. 2503023F - Bæjarstjórn Hornafjarðar - 334
Mál tekið fyrir á mínútu 39:45 í upptöku

Lagt fram til umræðu og kynningar.
Almenn mál
7. 202504065 - Ársreikningur sveitarfélagsins Hornafjarðar 2024
Ársreikningur Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2024 lagður fram til síðari umræðu í bæjarstjórn. Engar breytingar hafa átt sér stað frá fyrri umræðu.

Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls.

Mál tekið fyrir á mínútu 40:15 í upptöku.


Bæjarstjóri gerði grein fyrir ársreikningi sveitarfélagsins fyrir árið 2024 og lagði hann fram til samþykktar.

Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti ársreikninginn fyrir árið 2024.

Tillagan var borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Ársreikningur sveitarfélagið Hornafjörður 31.12.2024.pdf
8. 202501087 - Viðaukar við fjárhagsáætlun 2025
Viðauki 4 við fjárhagsáætlun 2025, vegna styrks til ungmennafélagsins Vísis vegna uppbyggingar fjölnota íþróttavallar að upphæð 7.000.000 kr. lagður fram til samþykktar.

Í viðaukanum er gert ráð fyrir auknum kostnaði í sameiginlegum lið að fjárhæð 7 millj. kr. Viðaukinn mun hafa áhrif til hækkunar á öðrum rekstrarkostnaði. Viðauka er mætt með handbæru fé að fjárhæð 7 millj. kr.
Handbært fé lækkar úr 30 millj. kr. í 23 millj. kr.

Mál tekið fyrir á mínútu 1:05:00 í upptöku.


Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti viðauka 4 og bar hann upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum
Áhrif viðauka 4 á fjárhagsáætlun 2025.pdf
Fjárhagsáætlun 2025 með viðaukum - Viðauki_4.pdf
9. 202402127 - Íþróttahús - hönnun
Lögð er fram tillaga stýrihóps um nýtt íþróttahús:

Í samræmi við niðurstöður stýrihópsins, þá þarfagreiningu sem hefur verið unnin síðustu ár og í samræmi við gildandi skipulag leggur stýrihópurinn til við bæjarstjórn að samþykkt verði að fara í framkvæmd á nýju íþróttahúsi við Víkurbraut. Í fyrsta áfanga verði farið í lagningu gervigrass, breytingu á núverandi íþróttahúsi til að mæta þörfum fimleikadeildarinnar, sem og í byggingu íþróttahúss. Einnig leggur stýrihópurinn til við bæjarstjórn, að bæjarstjórn feli stýrihópnum að kanna með hvaða rekstrarfyrirkomulagi væri hagkvæmast að standa að framkvæmdinni.

Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls.
Björgvin Óskar Sigurjónsson tók til máls.
Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls.
Eyrún Fríða Árnadóttir til andsvars.
Hjördís Edda Olgeirsdóttir tók til máls.
Sigurjón Andrésson til andsvars.
Björgvin Óskar Sigurjónsson til andsvars.
Sigurjón Andrésson til andsvars.
Ásgerður Kristín Gylfadóttir til andsvars og bar upp bókun.
Hjördís Edda Olgeirsdóttir til andsvars.
Sigurjón Andrésson til andsvars.

Mál tekið fyrir á mínútu 1:06:00 í upptöku.


Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti að fari verði í framkvæmdir á nýju íþróttahúsi við Víkurbraut ásamt þeirri áfangaskiptingu sem stýrihópurinn leggur til og feli honum að kanna með hvaða rekstrarfyrirkomulagi væri hagkvæmast að standa að framkvæmdinni.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með fimm atkvæðum
Björgvin Óskar Sigurjónsson og Ásgerður Kristín Gylfadóttir sátu hjá.

Ásgerður Kristín Gylfadóttir leggur fram eftirfarandi bókun fyrir hönd B-lista:

Fulltrúar B-lista harma að viðbygging við núverandi íþróttahús hafi ekki verið tekin til
skoðunar út frá sömu forsendum og unnið var með varðandi stakstætt hús. Enda eiga þau rök sem fulltrúi B-lista í stýrihópnum hefur með viðbyggingu við núverandi íþróttahús, og komið hafa fram í ræðu og riti, enn þá við. Þannig hefði verið hægt að bera betur saman kosti og galla hvorrar staðsetningar fyrir sig og taka upplýsta ákvörðun úr frá samanburðarhæfum gögnum.

Þá hvetja fulltrúar B-lista meirihluta stýrihópsins til að viðhafa formlegt samráð við þá sem þekkja best til starfsemi og þarfa þeirra sem munu nýta íþróttahúsið og íbúa í næstu skrefum verkefnisins sem er forsenda þess að við byggjum mannvirki sem þjónar samfélaginu vel.
Fyrirhuguð uppbygging íþróttahúss hér á Höfn í Hornafirði er eitt umfangsmesta einstaka verkefni sveitarfélagsins á næstu árum. Slíkt verkefni kallar á gagnsæi, samvinnu og virðingu fyrir áhrifum á daglegt líf og fjármál sveitarfélagsins. Samráð við íbúa og hagsmunaaðila er því ekki einungis lagaleg skylda heldur einnig skynsamlegt, sanngjarnt og lýðræðislegt skref.

Ásgerður Kristín Gylfadóttir, B- listi
Björgvin Óskar Sigurjónsson, B- listi


10. 202406082 - Dýpkun á Grynnslum 2025
Hornafjarðarhöfn áformar dýpkun siglingaleiðar um Grynnslin við Hornafjarðarós. Grynnslin eru sandrif sem myndast framan við sjávarfallaósa og eru mikill áhrifaþáttur í siglingum á svæðinu. Vegagerðin vinnur nú að langtímaáætlun sem felur í sér dýpkun með efnismagnið á bilinu 0 - 1.000.000 m3 á ári. Samtals allt að 5.000.000 m3 til 10 ára.

Fundur var haldin með fulltrúum Vegagerðarinnar þann 29. apríl þar sem farið var yfir stöðu mála varðandi dýpkun á Grynnslunum og næstu mögulegu skref. Hafnarstjórn hefur áður bókað um að æskilegt væri að fá dýpkunarskip síðsumars sem gæti athafnað sig í góðu tíðarfari og þannig náð að hreinsa meira efni en áður hefur verið gert. Nota mætti þá dýpkun sem innlegg í annars jákvæðar niðurstöður rannsókna sem unnar hafa verið á Grynnslunum og gefa tilefni til bjartsýni.

Sigurjón Andrésson tók til máls.

Mál tekið fyrir á mínútu 1:57:55 í upptöku.


Forseti lagði til eftirfarandi bókun:
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar skorar á stjórnvöld að tryggja fjármagn í dýpkun Grynnslana núna síðar í sumar. Sú dýpkun yrði nauðsynlegt innlegg inn í frekar rannsóknir á Grynnslunum og framtíðaráætlanir um uppbyggingu mannvirkja við þau. Þau munu síðan tryggja umferð skipa um Grynnslin og styrkja betur eina af aðallífæðum samfélagsins á Hornafirði til framtíðar.

Björgvin Óskar Sigurjónsson tók til máls.

Forseti bar bókunina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11. 202502103 - Fyrirspurn til Umhverfis- og skipulagsnefndar - (Hafnarbraut 11 F2180656)-(Grenndarkynning)
Óskað er eftir heimild til að byggja 10 herbergja gistiheimili á lóðinni Hafnarbraut 11 samkvæmt framlögðum gögnum. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu. Áformin voru grenndarkynnt í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og barst ein umsögn sem hefur verið svarað.


Mál tekið fyrir á mínútu 2:06:30 í upptöku.


Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti veitingu byggingarleyfis án deiliskipulagsgerðar í samræmi við 44. gr. skipulagslaga enda sé framkvæmdin í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12. 202504078 - Landeignaskrá: Gerði - stofnun nýrra lóða
Óskað er eftir staðfestingu á merkjalýsingu sem gerir ráð fyrir stofnun nýrra lóða. Lóðir eru í samræmi við deiliskipulag fyrir svæðið með einni viðbót (Oddnýjarhús - 2742m² að stærð).

Mál tekið fyrir á mínútu 2:07:30 í upptöku.


Forseti lagði til að bæjarstjórn gerði ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu og staðfesti að stofnun lóðanna hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga, sbr. einnig 48.gr. skipulagslaga. Umsækjanda er bent á að uppbygging og framkvæmdir hafa ekki verið heimilaðar á svæðinu umfram það sem gert er ráð fyrir í deiliskipulagi.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
13. 202501057 - Fyrirspurn til skipulagsstjóra - Breyting á deiliskipulagi Hafnarvík - Heppa, garðhús á Pakkhúsalóð
Á fundi þann 22.01.2025 óskaði umhverfis- og skipulagsnefnd eftir afstöðumynd af fyrirhugaðri framkvæmd. Umbeðin gögn bárust sveitarfélaginu í lok mars.

Mál tekið fyrir á mínútu 2:08:30 í upptöku.


Forseti lagði til að bæjarstjórn heimili að vikið verði frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga um breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu þar sem um svo óveruleg frávik sé að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14. 202502088 - Borgarhöfn 2-3 - Deiliskipulag
Sótt er um heimild til að leggja fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi Borgarhafnar - Neðribæjar. Breytingin felst í stækkun á tjaldsvæði og byggingarreit fyrir smáhýsi, íbúðarhúsi og þjónustuhúsi. Í aðalskipulagi er svæðið skilgreint sem verslun og þjónusta VÞ45 með eftirfarandi skilmálum: "Borgarhöfn Neðribær. Úr landi Borgarhafnar. Ferðaþjónusta, tjaldsvæði, gisting og reiðasala. Allt að 75 gistirými. Frístundahús, 4 hús. Hringtákn ~5 ha, þar af tjaldsvæði allt að 3 ha. fyrir allt að 300 gesti." Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að fyrirhugaðar breytingar séu verulegar.

Mál tekið fyrir á mínútu 2:09:40 í upptöku.



Forseti lagði til við bæjarstjórn að tillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga og að fallið verði frá kynningu skv. 40. gr. skipulagslaga þar sem allar meginforsendur liggja fyrir í aðalskipulagi.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
15. 202502034 - Fulltrúar í svæðisráð suðursvæðis í Vatnajökulsþjóðgarði 2025-2029
Sjálfstæðisflokkurinn óskar eftir að skipta um fulltrúa í svæðisráði Vatnajökulsþjóðgarðs. Þóra Björg Gísladóttir taki sæti Sigurjóns Andréssonar.


Mál tekið fyrir á mínútu 2:11:25 í upptöku.


Málið var tekið fyrir í tölvupósti og samþykkt þar með sjö atkvæðum.
Lagt fram til umræðu og kynningar.
16. 202502006 - Rekstur flokkunarstöðvar- vog
Lögð er fram tillaga að breyttri gjaldtöku fyrir úrgang í flokkunarstöðinni sem felur í sér áætlað gjald eftir rúmmáli.

Mál tekið fyrir á mínútu 2:12:00 í upptöku.


Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti tillögu að breyttri gjaldtöku fyrir úrgang í flokkunarstöðinni.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
17. 202504087 - Umsókn um lóð - Vesturbraut 29
Trausti Magnússon sækir um lóð að Vesturbraut 29.

Mál tekið fyrir á mínútu 2:12:40 í upptöku.


Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti lóðaúthlutunina.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
18. 202504011 - Landeignaskrá (Smyrlabjörg) - (afmörkun lóðar)
Óskað er eftir staðfestingu merkjalýsingar sem gerir ráð fyrir afmörkun og stækkun lóðarinnar L160144 og afmörkun nýrrar lóðar undir einbýlishús sem tekið er úr landi L160145 samkvæmt framlögðum gögnum.

Mál tekið fyrir á mínútu 2:14:30 í upptöku.


Forseti lagði til að bæjarstjórn gerði ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu og staðfesti að stofnun lóðarinnar ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga, sbr. einnig 48.gr. skipulagslaga. Umsækjanda er bent á að uppbygging og framkvæmdir hafa ekki verið heimilaðar á svæðinu umfram það sem gert er ráð fyrir í deiliskipulagi.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:30 

Til baka Prenta