Fundargerðir

Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarráð Hornafjarðar - 1176

Haldinn í ráðhúsi,
27.05.2025 og hófst hann kl. 10:00
Fundinn sátu: Eyrún Fríða Árnadóttir formaður,
Hjördís Edda Olgeirsdóttir varamaður,
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður,
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri, Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi.
Fundargerð ritaði: Sigurjón Andrésson, bæjarstjóri


Dagskrá: 
Fundargerðir til staðfestingar
1. 2505011F - Umhverfis- og skipulagsnefnd - 99
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar númer 99 lögð fram.

Lagt fram til kynningar.
 
Gestir
Brynja Dögg Ingólfsdóttir- Umhverfis-og skipulagsstjóri
Almenn mál
2. 202505027 - Starfsemi Ríkis Vatnajökuls ehf.2025
Fulltrúar frá Ríki Vatnajökuls komu fyrir bæjarráð og kynntu skýrslu stjórnar.

Bæjarráð þakkar fyrir kynninguna. Mikill hugur er í stjórninni að efla starfsemi félagsins og óskar þeim góðs gengis.
 
Gestir
Tinna Rut Sigurðardóttir
Valdís Björg Friðriksdóttir
3. 202505009 - Reglur um stuðningsþjónustu
Lögð eru fram tillaga af nýjum reglum um stuðningsþjónustu í Sveitarfélaginu Hornafirði. Reglurnar taka við núverandi reglum um félagslega heimaþjónustu í Sveitarfélaginu Hornafirði. Vinnsla reglanna er partur af úrbótaáætlun á reglum sem snúa að þjónustu stuðnings- og virkniþjónustu.



Bæjarráð gerir ekki athugasemd við reglurnar og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.
 
Gestir
Skúli Ingibergur Þórarinsson - Sviðstjóri velferðarsviðs
4. 202505038 - Reglur um stoðþjónustu
Lögð eru fram tillaga af nýjum reglum um stoðþjónustu í Sveitarfélaginu Hornafirði. Reglurnar taka við núverandi reglum um félagslega heimaþjónustu í Sveitarfélaginu Hornafirði. Vinnsla reglanna er partur af úrbótaáætlun á reglum sem snúa að þjónustu stuðnings- og virkniþjónustu.



Bæjarráð gerir ekki athugasemd við reglurnar og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.
 
Gestir
Skúli Ingibergur Þórarinsson - Sviðstjóri velferðarsviðs
5. 202409038 - Endurskoðun reglna um fjárhagsaðstoð
Lögð fram tillaga um uppfærslu á reglum um fjárhagsaðstoð í Sveitarfélaginu Hornafirði. Breytingar snúa að því að uppfæra grunnfjárhæð í samræmi við það sem ákveðið var um áramót, kveða nánar á um hvenær skila beri inn umsóknum, breyting sem felur í sér að umsóknir fari fram í gegnum samræmda gátt á www.island.is og aðrar smávægilegri breytingar.



Bæjarráð gerir ekki athugasemd við breytingu á reglunum og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.
 
Gestir
Skúli Ingibergur Þórarinsson - Sviðstjóri velferðarsviðs
6. 202505093 - Styrkir til þátttöku ungmenna í íþróttamótum.
Á fundi bæjarráðs þann 20.05.2025 óskaði bæjarráð um upplýsingar um styrki til þátttöku ungmenna í íþróttamótum. Umbeðnar upplýsingar lagðar fram.


Lagt fram til kynningar.
7. 202409013 - Skólamáltíðir útboð 2025
Enginn tilboð bárust vegna útboðs skólamáltíða.

Sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs er falið að kanna samningsgrundvöll við núverandi samningshafa.
Samþykkt samhljóða.
 
Gestir
Jóna Benný Kristjánsdóttir - Sviðstjóri stjórnsýslusviðs
8. 202306046 - Framkvæmd byggingar hjúkrunarheimilis
Minnisblað um stöðu framkvæmda hjúkrunarheimilis ásamt ástandsúttekt lagt fram.

Framkvæmdir við nýtt hjúkrunarheimili við Víkurbraut hafa tafist vegna rakaskemmda sem komu í ljós í byrjun árs. Orsökina má rekja til þess að vatn komst að burðarvirki hússins. FSRE (Framkvæmdasýslan Ríkiseignir) hefur brugðist við með ítarlegri greiningu og vinnur nú að úrbótum í samvinnu við sérfræðinga og verktaka.

Unnið er að því að fjarlægja og endurnýja skemmd efni, bæta gæðastjórnun og efla eftirlit. Ný tímaáætlun er í vinnslu en áhersla er lögð á vandaðan frágang og heilnæmt húsnæði.
Þrátt fyrir töf er verkefnið ekki stöðvað og hafa aðilar það að markmiði að ljúka því eins fljótt og unnt er.

Bæjarráð óskar eftir því að fulltrúi FSRE komi á fund þess og geri nánari grein fyrir stöðu mála.
9. 202401088 - Fundargerðir Nýheima þekkingarseturs 2024
Fundargerð ársfundar Nýheima þekkingarseturs lögð fram.

Lagt fram til kynningar
Ársfundur 9.4.2025.pdf
10. 202503067 - Staða flugs til Hornafjarðar
Vegagerðin vinnur að heildarendurskoðun á innanlandsflugi og óskaði eftir upplýsingum frá sveitarfélaginu. Svör sveitarfélagsins lögð fram.

Lagt fram til kynningar.
Heildarendurskoðun á innanlandsflugi - Hornafjörður maí 2025.pdf
11. 202502013 - Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025
fundargerð 979. fundar stjórnar Sambandsins frá 16. maí 2025 lögð fram

Lagt fram til kynningar.
stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 979.pdf
12. 202505063 - Til umsagnar mál nr.351- Frumvarp til laga um veiðigjald
Umsögn sveitarfélagsins Hornafjarðar um fyrirhugaða hækkun veiðigjalda lögð fram.


Bæjarráð samþykkti umsögnina samhljóða í tölvupósti.
Lagt fram til kynningar.
Drög að umsögn Sveitarfélagsins Hornafjarðar um fyrirhugaða hækkun veiðigjalds.pdf
13. 202412046 - Hönnun - Gáran, Sæbraut 1 - viðbygging fyrir pressu og starfsmannaaðstöðu
Lagt fram minnisblað vegna kostnaðaráætlunar fyrir viðbyggingu við Gáruna. Gerðar voru breytingar á fyrri áætlunum til að auka nothæfni rýmis.



Bæjarráð felur umsjónarmanni fasteigna að auglýsa útboðið.
Samþykkt samhljóða.
 
Gestir
Björn Þór Imsland - Umsjónarmaður fasteigna
14. 202406005 - Framkvæmd: Sindrabær breytingar 2024
Lögð fram tillaga af stólum fyrir sal á efri hæð í Sindrabæ.



Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagða tillögu.
 
Gestir
Björn Þór Imsland - Umsjónarmaður fasteigna
15. 202502054 - Málefni motocross svæðisins
Erindi frá Akstursíþróttafélagi Austur-Skaftafellssýslu þar sem beðið er um aðkomu sveitarfélagsins vegna flutnings á motorcrossbraut ásamt beiðni um styrk fyrir innviðum vegna íslandsmóts í motorcross 2025 sem áætlað er að halda í sumar.


Bæjarráð er jákvætt fyrir því að koma til móts við Akstursíþróttafélagið (ASK) til þess að halda íslandsmót í sumar og gera styrktarsamning við félagið líkt og við önnur íþróttafélög í sveitarfélaginu. Bæjarstjóra falið að ræða við stjórn ASK.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:00 

Til baka Prenta