Fundargerðir

Fundargerðir

Til baka Prenta
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 99

Haldinn í ráðhúsi,
21.05.2025 og hófst hann kl. 15:00
Fundinn sátu: Gunnlaugur Róbertsson formaður,
Anna Ragnarsdóttir Pedersen 2. varamaður,
Þröstur Jóhannsson aðalmaður,
Helga Árnadóttir aðalmaður,
Finnur Smári Torfason 1. varamaður,
Stefán Birgir Bjarnason Fulltrúi ungmennaráðs,
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagstjóri , Guðrún Agða Aðalheiðardóttir .
Fundargerð ritaði: Brynja Dögg Ingólfsdóttir, umhverfis- og skipulagsstjóri


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 202303123 - Endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Lögð fram vinnslutillaga að endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar ásamt minnisblöðum vegna hættumats vegna berghlaups úr Svínafellsheiði í Öræfum og landnotkun í Öræfum.

Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að miðað verði við hættumatslínur fyrir árið 2040 og takmarkanir á uppbyggingu verði miðaðar við reglugerð um hættumat vegna ofanflóða og flokkun og nýtingu hættusvæða nr. 505/2000.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að kynna vinnslutillögu að nýju aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar með þeim breytingum sem lagðar voru til á fundinum, í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Umhverfis- og skipulagsstjóra er falið að funda með Skipulagsstofnun, undirbúa tillöguna til auglýsingar og skipuleggja kynningar fyrir íbúa og hagsmunaaðila.
 
Gestir
Jón Jónsson /Sókn
Matthildur Kr. Elmarsdóttir /Alta
2. 202501062 - Byggingarleyfisumsókn - Júllatún 8 og 10, parhús.
Stálgrindarhús óskar eftir að fá byggingarleyfi á grunni samþykktar nágranna. Stálgreindarhús hefur fengið samþykki nágranna í Júllatúni 17, 19 og 21 sem liggja fyrir.

Gunnlaugur Róbertsson vék af fundi undir þessum lið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir óverulega breytingu á deiliskipulagi Heilbrigðisstofnunar Suðurlands- HSSA þar sem heimilað er að byggja parhús á lóðum Júllatúni 8 og 10 í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
3. 202503099 - Umsókn um byggingarheimild - Hagi 2, þrjú gistihús.
Rut Guðmundsdóttir sækir um heimild til að setja niður 3 gistihús að Haga 2. Ekki er í gildi deiliskipulag fyrir svæði en samkvæmt aðalskipulagi er svæðið inn á landbúnaðarsvæði en um það segir m.a. "Ferðaþjónusta, svo sem gisting og greiðasala, innan tiltekinna stærðarmarka meðfram búskap, skal teljast hluti landbúnaðar þar sem er föst búseta. Heimilt er að selja gistiþjónustu í flokki 1 og 2 sbr. reglugerð nr. 1277/2016 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald. Heimilt er að nýta núverandi byggingar með breytingum og/eða takmarkaðri viðbótaruppbyggingu fyrir gistingu í allt að 16 herbergjum, fyrir 32 gesti." Grenndarkyning hefur farið fram og engar athugasemdir bárust.



Gunnlaugur Róbertsson vék af fundi undir þessum lið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita byggingarleyfi fyrir þremur gistihúsum í landi Haga 2 án deiliskipulagsgerðar í samræmi við 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga, enda er framkvæmdin í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
4. 202410087 - Hoffell - Baðstaður við Miðfell
Fyrirhugað er að færa baðaðstöðu í landi Miðfells. Framkvæmdin hefur verið grenndarkynnt, engar athugasemdir bárust og Minjastofnun gerði ekki athugasemd.

Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita Bláa lóninu byggingarheimild fyrir nýrri baðaðstöðu við Miðfellsbæinn í Hoffelli án deiliskipulagsgerðar í samræmi við 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
5. 202412011 - Námur í Laxá - fyrirspurn
Óskað er eftir leyfi til þess að taka efni úr neðsta hluta Laxár í Nesjum og gerir ráð fyrir að á líftíma malarnámsins fari heildarmagnið yfir 20 þúsund rúmmetra.

Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita framkvæmdaleyfi skv. 13. grein skipulagslaga fyrir efnistöku að hámarki 10 þús. rúmmetra. Náman er skilgreind í aðalskipulagi ssem náma E 81 með hámarks efnismagn 10.000 m3. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
6. 202503007 - Umsókn um byggingarheimild, bílskúrsþak Silfurbraut 19-29
Húsfélag Silfurbrautar 19-29 sækir um leyfi til að byggja risþak ofan á þak ofan á bílageymslu, sem er steypt plata, til þess að laga leka. Erindið var grenndarkynnt húseigendum á Silfurbraut 31 og 32. Engar umsagnir bárust.

Gunnlaugur Róbertsson vék af fundi undir þessum lið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að framkvæmdin sé í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. og 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
7. 202501089 - Stækkun byggingar, Fiskhóll 11, deiliskipulag
Breytt erindi frá Imsland ehf. vegna deiliskipulags lóðar Fiskhóll 11. Ný tillaga gerir ráð fyrir því að lóðin stækki um u.þ.b. 474 fm. Tillagan gerir einnig ráð fyrir fjölgun íbúða úr 6 í 7 og nýjan byggingarreit fyrir bílskúr og sólstofu.

Lögð fram samantekt á áhrifum erindisins á hagsmuni sveitarfélagsins og felur sviðsstjóra mannvirkjasviðs og sviðsstjóra stjórnsýslusviðs að vinna áfram í málinu.


Helga Árnadóttir vék af fundi undir þessum lið.
Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu.
8. 202505080 - Fyrirspurn til Umhverfis- og skipulagsnefndar - (Birkifell L)-(Heimild til að reisa íbúðarhús)
Óskað er eftir heimild til að reisa íbúðarhús í landi Birkifells L. 159490 án deiliskipulagsgerðar. Húsið verður innan eignarlands umsækjanda og staðsett norðaustan við núverandi íbúðarhús og aðkomuveg. Framkvæmdin krefst ekki vegagerðar eða nýrra tenginga. Þegar hefur farið fram skoðun á fornminjum á svæðinu, gerð af Sveitarfélaginu árið 2015. Húsið verður um 80 m2 á einni hæð. Á landinu eru nú þegar íbúðarhús og tvær einingar til útleigu ferðamanna.

Finnur Smári Torfason vék af fundi undir þessum lið.
Umhverfis og skipulagsnefnd telur að gera þurfi óverulega breytingu á deiliskipulagi hitaveitu í landi Hoffells og óskar eftir gögnum til grenndarkynningar fyrir nágranna á Hoffelli og Miðfelli.
9. 202504057 - Umsókn um framkvæmdarleyfi - Míla
Míla leggur inn umsókn fyrir framkvæmdaleyfi vegna lagningu ljósleiðara í sumar.

Umhverfis- og skipulagsnefnd fagnar þessu verkefni og samþykkir að veita framkvæmdaleyfi vegna lagningu ljósleiðara í sumar í samræmi við 15. gr. skipulagslaga þegar umsögn Minjastofnunar liggur fyrir.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
10. 202505083 - Framkvæmdaleyfi - Hringtorg Hringvegur
Vegagerðin sækir um framkvæmdaleyfi til byggingar á Hringtorgi á Hringveginum í stað tveggja T-gatnamóta. Hringtorgið verður staðsett þar sem núverandi afleggjari að Hafnarnesi er, í fyrirhugaðri veglínu Hringvegarins. Þá þarf að aðlaga legu Hafnarvegar að hringtorginu að norðanverðu og lítilsháttar að sunnanverðu. Efni verður sótt í þær námur sem tilgreindar voru í upphaflegu umhverfismati.
Fyrirhuguð framkvæmd, eins og henni er lýst í fylgigögnum framkvæmdaleyfisumsóknar, er í samræmi við Aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030, matsskyldufyrirspurn Vegagerðarinnar (mars 2025) og ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu dags. 23. apríl 2025.


Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita Vegagerðinni framkvæmdaleyfi, í samræmi við 15. gr. skipulagslaga, fyrir byggingu hringtorgs á Hringveginum við afleggjara að Höfn. Fyrirhuguð framkvæmd er í samræmi við aðalskipulag. Málinu vísað til bæjarstórnar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:10 

Til baka Prenta