|
|
1. 2505009F - Velferðarnefnd - 41 |
Lagt fram til kynningar. |
|
|
|
2. 2505003F - Fræðslu- og frístundanefnd - 125 |
Lagt fram til kynningar. |
|
|
Gestir |
Þórgunnur Torfadóttir- sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs |
|
|
|
|
3. 202402127 - Íþróttahús - hönnun |
Fundargerð stýrihóps um nýtt íþróttahús númer 35 lögð fram.
|
Lagt fram til kynningar. |
35. fundur í stýrihóp 13. maí 2025.pdf |
|
|
|
4. 202504067 - Umsögn um útgáfu rekstrarleyfis - Veitingaleyfi- Skaftafell 1b - F2182239 |
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna rekstrarleyfis til reksturs veitingastaðar í flokki II- E kaffihús, Skaftafelli 1b.
|
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn með fyrirvara um jákvæða umsögn frá slökkviliði. |
|
|
|
5. 202505047 - Umsögn um tækifærisleyfis -Sjómannaball |
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn við útgáfu á tækifærisleyfi fyrir áfengisveitingar á Sjómannadagsball
|
Bæjarráð veitir samhljóða jákvæða umsögn.
|
|
|
|
6. 202408061 - Byggingarleyfisumsókn - Silfurbotn 1, 3, 5 - raðhús |
Lóðarhafi að Silfurbotni 1-5 óskar eftir frest frá reglum sveitarfélagsins vegna byggingarframkvæmda á lóðunum.
|
Bæjarráð óskar eftir nákvæmari tímaáætlun framkvæmda og frestar afgreiðslu málsins þar til hún liggur fyrir. |
|
|
Gestir |
Guðrún Agða Aðalheiðardóttir- Verkefnastjóri umhverfis- og skipulagsmála |
Brynja Dögg Ingólfsdóttir- Umhverfis-og skipulagsstjóri |
|
|
7. 202405059 - Vegur á milli Nesja og Hafnar - Hringtorg |
Samningur um makaskipti á landi sveitarfélagsins vegna hringtorgs lagður fram ásamt verðmati fasteignasala.
|
Lagt fram til kynningar. |
|
|
|
8. 202505066 - Beiðni frá Foreldrafélögum Sjónarhóls og Grunnskóla Hornafjarðar- frítt í sund vegna litahlaups |
Foreldrafélög Sjónarhóls og grunnskóla Hornafjarðar standa fyrir litahlaupi þann 28. maí nk. Óskað er eftir því að þátttakendur fái gjaldfrjálsann aðgang í sund eftir hlaupið.
|
Bæjarráð samþykkir að veita þátttakendum í litahlaupinu frítt í sund eftir viðburðinn miðvikudaginn næstkomandi. Samþykkt samhljóða. |
|
|
|
9. 202505069 - Styrkbeiðni vegna þátttöku í Íslandsmóti í Motocross |
Lögð er fram beiðni um styrk vegna þátttöku Hannesar Þórs Guðnason í íslandsmóti motorcross sumarið 2025. Óskað er eftir styrk að fjárhæð 350.000 kr.
|
Bæjarráð samþykkir styrkbeiðni að fjárhæð 350.000 kr. beiðnin rúmast innan fjárheimilda úr styrktarsjóði bæjarráðs. Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúa falið að afla frekari upplýsinga um styrki til þátttöku ungmenna í íþróttamótum. Samþykkt samhljóða. |
|
|
|
10. 202505068 - Innsent erindi frá Golfklúbbi Hornafjarðar |
Aðsent erindi frá Golfklúbbi Hornafjarðar um framtíðarlandnýtingu fyrir Golfklúbb Hornafjarðar ásamt útivistarsvæði fyrir íbúa sveitarfélagsins.
|
Bæjarráð vísar beiðni um stækkun vallarins til vinnslu aðalskipulags og felur bæjarstjóra að vinna málið áfram í samstarfi við golfklúbbinn og starfsfólk sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða. |
|
|
|
11. 202505070 - Samstarfsbeiðni - Graffíll listahátíð unga fólksins |
Forsvarsmenn listahátíðarinnar Grafíls óska eftir stuðning og samstarfi við sveitarfélagið í tengslum við hátíðina.
|
Bæjarráð samþykkir styrkbeiðni að upphæð 2.500.000 kr. Beiðnin rúmast innan fjárheimilda. Bæjarráð tilnefnir einnig Kristínu Völu Þrastardóttur forstöðumann Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar sem fulltrúa í stjórn og prófkúruhafa félagsins. Samþykkt samhljóða. |
|
|
|
12. 202412078 - Fundartími bæjarráðs |
Umræður um fundartíma bæjarráðs í sumarleyfi bæjarstjórnar.
|
Fundir bæjarráðs í sumarleyfi bæjarstjórnar verði 16. júní og svo á tveggja vikna fresti frá og með 1 júlí til 12. ágúst. Samþykkt samhljóða. |
|
|
|
13. 202502013 - Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025 |
fundargerðir 964. og 971. fundar stjórnar Sambandsins frá 7. og 28. febrúar 2025 lagðar fram.
|
Lagt fram til kynningar. |
stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 971.pdf |
stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 964.pdf |
stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 972.pdf |
|
|
|
14. 202505064 - Til umsagnar frumvarp til laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða |
Lögð fram tilkynning frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis dagsett 14. maí 2025, atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu) - 298. mál.
|
Lagt fram til kynningar. |
|
|
|
15. 202505063 - Til umsagnar mál nr.351- Frumvarp til laga um veiðigjald |
Lögð fram tilkynning frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis dagsett 13. maí 2025, atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga frumvarp til laga um veiðigjald (aflaverðmæti í reiknistofni) - 351. mál.
|
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gera drög að umsögn fyrir hönd sveitarfélagsins í samræmi við skýrslu samtaka sjávarútveg sveitarfélaga. |
|
|
|
16. 202505072 - Sóknaráætlun Suðurlands |
Sóknaráætlun Suðurlands 2025-2029 hefur verið sett í opið samráðsferli þar sem allir geta sent inn ábendingar og tillögur varðandi áætlunina, markmið hennar og innihald. Opið er fyrir umsagnir til 28.05.2025
|
Lagt fram til kynningar. |
|
|
|
17. 202505073 - Áform um endurskoðun sveitarstjórnarlaga |
Innviðaráðuneytið vekur athygli á því að áform um lagabreytingar sem innviðaráðherra hyggst leggja fram á næsta haustþingi hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Annars vegar er um að ræða frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga (skattlagning orkumannvirkja) og hins vegar er um að ræða frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum (endurskoðun sveitarstjórnarlaga).
Frestur til að veita umsögn um áformin er til 9. júní nk.
|
Lagt fram til kynningar. |
|
|
|