Deildarstjóri skipulags-,umhverfis- og byggingardeildar
Við leitum að framsýnum og metnaðarfullum leiðtoga til að ganga til liðs við teymið okkar.
Auglýst er eftir deildarstjóra skipulags-, umhverfis- og byggingardeildar, sem jafnframt gegnir hlutverki skipulagsfulltrúa. Þetta er lykilhlutverk fyrir þá sem vilja móta sjálfbæra og blómlega framtíð samfélagsins á einstökum stað. Ertu tilbúinn að takast á við krefjandi verkefni og leiða mikilvæga þróun?
Helstu ábyrgðarsvið og tækifæri:
- Umsjón með öflugu teymi sem samanstendur af umhverfisfulltrúa, byggingarfulltrúa og verkefnastjóra umhverfis- og skipulagsmála.
- Yfirumsjón með öllum skipulagsmálum sveitarfélagsins, þar á meðal gerð og breytingum á aðal- og deiliskipulagi.
- Umsjón með umhverfismálum sveitarfélagsins.
- Útgáfa og eftirlit með framkvæmdaleyfum.
- Aðstoð við túlkun skipulagsskilmála.
- Undirbúningur mála og seta funda umhverfis- og skipulagsnefndar.
- Umsjón með landupplýsingum, kortagrunnum, lóðamálum og lóðaúthlutunum, ásamt utanumhaldi um allar landeignir sveitarfélagsins.
- Gerð umsagna um laga- og reglugerðarbreytingar og skipulagsmál aðliggjandi sveitarfélaga sem varða starfsemi deildarinnar og hagsmuni sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Hvaða hæfni og reynslu leitum við að?
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi er skilyrði, svo sem í skipulagsfræði, arkitektúr, byggingarfræði eða verkfræði.
- Æskilegt er að þú hafir viðbótarmenntun sem nýtist í starfi, t.d. í opinberri stjórnsýslu og/eða verkefnastjórnun.
- Umsækjandi þarf að uppfylla hæfisskilyrði 5. mgr. 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ef það á við, þá skal umsækjandi leggja fram staðfestingu Skipulagsstofnunar um að hann uppfylli hæfisskilyrði.
- Reynsla af störfum í opinberri stjórnsýslu og mannaforráðum er æskileg.
- Við leitum að vandvirkum, nákvæmum og jákvæðum einstaklingi með mikinn drifkraft og frumkvæði.
- Umsækjandi þarf að vera sveigjanlegur, lipur í samskiptum og búa yfir ríkri þjónustulund.
- Hæfni til að vinna hratt og örugglega úr verkefnum er mikilvæg.
- Mjög góð færni í íslensku, bæði rituðu máli og töluðu, er nauðsynleg.
- Góð tölvukunnátta er nauðsynleg.
Umsóknum skal skilað inn til Jónu Benný Kristjánsdóttur, staðgengils bæjarstjóra, á tölvupóstfangið jonabenny@hornafjordur.is .
Umsóknarfrestur er til 3. júlí nk.