Umsjónarþroskaþjálfi / félagsráðgjafi

Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir að ráða Umsjónarþroskaþjálfa eða félagsráðgjafa hjá fjölskyldu- og félagsþjónustu. 

HÆFNISKRÖFUR

  • Starfsréttindi sem þroskaþjálfi eða félagsráðgjafi frá landlækni
  • Framhaldsnám á háskólastigi sem nýtist í starfi kostur
  • Reynsla af vinnu í málaflokknum kostur
  • Reynsla af verkefnastýringu og mannaforráðum kostur
  • Framúrskarandi samskiptafærni og hæfni til að vinna í teymum
  • Góð tölvukunnátta
  • Íslenska B2 skv. samevrópska tungumálarammanum
  • Skipulögð vinnubrögð og faglegur metnaður

HELSTU VERKEFNI

  • Umsjón með þjónustu við fötluð börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra
  • Umsjón með stuðningsúrræðum á borð við liðveislu, stuðningsfjölskyldum og hópastarfi
  • Ráðgjöf og réttindagæsla fyrir fötluð börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra
  • Ábyrgð á framkvæmd SIS-C mats
  • Umsjón á verkefnum vegna móttöku flóttafólks
  • Ráðgjöf og réttindagæsla fyrir erlenda íbúa
  • Ráðgjöf í barnavernd
  • Málstjórn í teymum vegna farsældar barna

FREKARI UPPLÝSINGAR

Velferðarsvið Sveitarfélagsins Hornafjarðar er staðsett í Miðgarði þjónustumiðstöð. Fjölskyldu- og félagsþjónusta sinnir félagslegri ráðgjöf, ráðgjöf við börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra, ráðgjöf við erlenda íbúa, fjölmenningu og Barnaverndarþjónustu Fjarðabyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Innan sviðsins starfar fjölbreyttur og öflugur hópur sem hefur það að markmiði að efla fólk til sjálfshjálpar.

Um er að ræða 100% starf. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf í september 2025. Laun eru samkvæmt kjarasamning viðeigandi stéttarfélags og Samband Íslenskra sveitarfélaga.

Umsóknarfrestur er til og með 6. júlí 2025. Öll kyn hvött til að sækja um.

Óskir um frekari upplýsingar og umsóknir skal senda á netfangið skuliing@hornafjordur.is.