Deildarstjóri á Sjónarhól

Leikskólinn Sjónarhóll auglýsir eftir leikskólakennara eða öflugum leiðbeinanda í starf deildarstjóra

Helstu verkefni og ábyrgð:

Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi.

Hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun eða önnur sambærileg uppeldismenntun. 
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg 
  • Áhugi á börnum og njóta þess að vera með þeim 
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum 
  • Stundvísi, frumkvæði og faglegur metnaður 
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð 
  • Góð íslenskukunnátta

Laun greidd samkvæmt samningum launanefndar Sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.

Umsóknarfrestur er til 11. júlí næstkomandi.

Áhugasamir af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um.

Umsóknum skal skila á netfangið mariannaj@hornafjordur.is. Með umsókn skal fylgja afrit af menntunargögnum ásamt ferilskrá og meðmælendum. Frekari upplýsingar veita Maríanna í síma 4708491 og Elínborg í síma 4708492.

Leikskólinn Sjónarhóll er glæsilegur 8 deilda leikskóli með metnaðarfullu starfsfólki sem er til í að fá áhugasaman liðsauka. Leikskólinn er heilsuleikskóli sem leggur áherslu á útiveru og að kenna börnum færni í gegnum leik.

Athygli er vakin á því að við ráðningu leikskólastarfsmanns er óskað eftir sakavottorði og að umsóknir geta gilt í 6 mánuði eftir að umsóknarfrestur rennur út.