Stuðnings- og virkniþjónusta Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Tvær 50% stöður starfsmanna í iðju og virkni.
Stuðnings- og virkniþjónusta óskar eftir einstaklingum í tvær 50% stöðu starfsmanns í iðju og virkni.
Stuðnings- og virkniþjónusta óskar eftir einstaklingum í tvær 50% stöðu starfsmanns í iðju og virkni. Meginmarkmið starfsins er að aðstoða þjónustunotendur í virkni og hæfingu ásamt því að taka þátt í undirbúningi og daglegri starfsemi hjá stuðnings- og virkniþjónustu sveitarfélagsins. Starfsmaður í iðju og virkni vinnur í teymi stuðnings- og virkniþjónustu þar sem áhersla er lögð á hæfingu og virkni sem hentar hverjum og einum.
Stuðnings- og virkniþjónusta velferðarsviðs sveitarfélagsins er staðsett í Miðgarði, Víkurbraut 24. Vinnustaðurinn er lifandi og skemmtilegur og þar starfar fjölbreyttur hópur fólks. Unnið er eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar og mikil áhersla er lögð á fagmennsku og ánægju í starfi.
Hæfniskröfur:
·
Nám sem nýtist í starfi er kostur
·
Reynsla af starfi í málaflokki
fatlaðs fólks kostur
·
Framúrskarandi samskiptahæfni
·
Haldbær þekking á þjónandi
leiðsögn kostur
·
Stundvísi, frumkvæði og
samviskusemi
·
Góð tök á íslensku í ræðu og riti
·
Hreint sakavottorð
·
Bílpróf
Starfið er unnið
í dagvinnu og eru öll kyn hvött til að sækja um.
Umsóknarfrestur er til og með 23. júlí n.k. og skal umsókn fylgja
ferilskrá og kynnisbréf.
Umsóknir skulu sendar á netfangið bessy@hornafjordur.is.
Nánari upplýsingar veitir Sigrún Bessý Guðmundsdóttir stjórnandi stuðnings- og virkniþjónustu.
Laun eru samkvæmt
kjarasamningi Sambands ísl.
sveitarfélaga við ASÍ/BSRB Ráðið er í starfið óháð kyni.
Um tilraunaverkefni er að ræða og ráðning er
til eins árs með möguleika á fastráðningu.l