Sumarafleysingar í Áhaldahúsi

Sveitarfélagið Hornafjörður auglýsir eftir starfsmanni í Áhaldahús sveitarfélagsins til afleysinga yfir sumarið.

Leitað er eftir einstaklingi sem á gott með að vinna með öðrum, hefur frumkvæði og er stundvís, metnaðarfullur og samviskusamur. Viðkomandi þarf að búa yfir sjálfstæðum vinnubrögðum og ríkri þjónustulund.
Starfið hentar öllum kynjum en æskilegur aldur er 20 ára eða eldri. Gerð er krafa um bílpróf og er vinnuvélaréttindi kostur.

Starfsmenn Áhaldahúss gegna fjölbreyttum störfum og sinna daglegum rekstri áhaldahúss. Þeir annast framkvæmdir hjá Hornafjarðarveitum og sinna umhirðu opinna svæða, umferðarmannvirkja og gangstétta.

Laun eru greidd samkvæmt samningum Launanefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga við FOSS BSRB eða Afl Starfsgreinafélags.

Umsóknarfrestur er til 2. júní næstkomandi.

Skriflegar umsóknir, ásamt ferilskrá, skulu berast á netfangið ahaldahus@hornafjordur.is og nánari upplýsingar um starfið gefur Þröstur Jóhannsson, bæjarverkstjóri, í síma 8951473 .