Sumarstörf við Búsetudeild

Velferðarsvið Sveitarfélagsins Hornafjarðar auglýsir sumarstörf við Búsetudeild 

Stuðnings-og virkniþjónusta óskar eftir einstaklingum í sumarafleysingar við Búsetudeild. Starfið felur í sér aðstoð á heimilum einstaklinga við athafnir daglegs lífs með því markmiði að efla einstaklinginn til sjálfshjálpar ásamt því að veita félagslegan stuðning.

Um vaktavinnu er að ræða en viðkomandi starfsmaður þarf að ganga morgun-, kvöld og bakvaktir.

Hæfniskröfur:

  • Stundvísi, samviskusemi, sveigjanleiki, jákvæðni og frumkvæði í starfi.
  • Hreint sakavottorð
  • Bílpróf

Umsóknir skulu sendar á netfangið sigridurhelga@hornafjordur.is eða á bessy@hornafjordur.is.

Nánari upplýsingar veitir Sigríður Helga Axelsdóttir forstöðumaður stuðnings- og virkniþjónustu. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Ráðið er í starfið óháð kyni.