Velferðarsvið auglýsir starf við félagslega heimaþjónustu
Stuðnings- og virkniþjónusta óskar eftir einstaklingi í 50% stöðu við félagslega heimaþjónustu.
Meginmarkmið starfsins er að aðstoða þjónustunotendur, sem þurfa á aðstoð að halda, við athafnir daglegs lífs, aðallega heimilisstörf og að draga úr félagslegri einangrun. Áhersla er lögð á að bera virðingu fyrir einkalífi, heimili einstaklings og fjölskyldu hans.
Starfið er unnið í dagvinnu.
Hæfniskröfur:
- Stundvísi, samviskusemi, sveigjanleiki, jákvæðni og frumkvæði í starfi.
- Hreint sakavottorð
- Bílpróf
bessy@hornafjordur.is .
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Helga Axelsdóttir forstöðumaður
stuðnings- og virkniþjónustu. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands
ísl. sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Ráðið er í starfið óháð kyni.