Atvinnu-og rannsóknarsjóður 2017

Atvinnumálanefnd Hornafjarðar auglýsir eftir umsóknum í atvinnu- og rannsóknarsjóð Sveitarfélagsins Hornafjarðar.

Sjóðurinn veitir styrki til verkefna sem efla byggð eða atvinnu í sveitarfélaginu án þess að skekkja samkeppnisstöðu starfandi fyrirtækja á svæðinu. Sjóðnum er ætlað að veita styrki til atvinnuþróunar, nýsköpunar og rannsókna.

Þeir sem hafa lögheimili í sveitarfélaginu og hafa þar fasta búsetu geta sótt um styrki til sjóðsins. Atvinnumálanefnd Hornafjarðar hefur umsjón með sjóðnum.

Umsóknir Atvinnu-og rannsóknarsjóðs eru aðgengilegar á íbúagátt.

Matsrammi fyrir rannsóknarþátt.

Matsrammi fyrir atvinnuþátt.

Framvinduskýrsla eyðublað.

Reglur Atvinnu- og rannsóknarsjóðs.

Nánari upplýsingar eru veittar í ráðhúsi, Hafnarbraut 27 Höfn.

Árdís Erna Halldórsdóttir atvinnu- og ferðamálafulltrúi.