Menningarmiðstöð Hornafjarðar

Forstöðumaður Eyrún Helga Ævarsdóttir, eyrunh@hornafjordur.is

Stofnunin heitir Menningarmiðstöð Hornafjarðar og starfsvæðið hennar er Sveitarfélagið Hornafjörður. Stofnunin varð til árið 1990 með sameiningu nokkurra safna. Heiti hennar var upphaflega Sýslusafn Austur-Skaftafellssýslu en breyttist árið 2001 í Menningarmiðstöð Hornafjarðar.

Árið 2020 voru atvinnu- og ferðamál sameinuð Menningarmiðstöð Hornafjarðar og því er Menningarmiðstöðin orðin miðstöð menningar- ,atvinnu- og ferðamála í sveitarfélaginu.

Menningarmiðstöð Hornafjarðar starfar eftir gildandi lögum um starfsemi safna, safnalögum, lögum um skil á menningarverðmætum og þjóðminjalögum, bókasafnslögum, lög um opinber skjalasöfn og siðareglum ICOM, einnig starfar stofnunin eftir siðareglum og viðmiðum sem höfuðsöfn setja um starfsemi safna, varðveislu og meðferð muna.

Innan Menningarmiðstöðvarinnar eru starfrækt sex söfn ásamt atvinnu-, ferða- og rannsóknarsviði sem starfar þvert á einingarnar. Söfnin eru byggða-, sjóminja-, náttúrugripa-, lista-, bóka-, héraðsskjala-, náttúrugripa- og sjóminjasafn.

Innan Menningarmiðstöðvarinnar eru sjö stöðugildi, sex þeirra eru 100% stöður og ein 50%.

Sýningar á vegum safnanna eru mikilvægur þáttur í safnastarfinu, og hér leggjum við áherslu á sérstöðu Hornafjarðar og því samfélagi sem er og var. Í dag er opin sýning í Verbúðinni í Miklagarði og Svavarssafni.

Menningarmiðstöðin leggur mesta áherslu á miðlun og fræðslu menningararfs Hornafjarðar, skrásetningu hans og varðveislu til framtíðar. Þróunar á atvinnustarfsemi og á ferðamannaiðnaðinum. Einnig verður æ ríkari áhersla lögð á rannsóknarstarf og ekki síst miðlun þess starfs til almennings sem og þátttöku barna og unglinga á þeim vettvangi. Önnur meginmarkmið Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar er að hlúa að því öfluga og fjölbreytta menningarstarfi sem til staðar er í sveitarfélaginu og að efla atvinnustarfsemi og uppbyggingu ferðamannastaða í sveitarfélaginu. Efla vitund fólks um sérkenni og menningararf héraðsins og halda þeim sérkennum við með fræðslu, kynningu og beinum aðgerðum.

Menningarmiðstöð Hornafjarðar stendur einnig fyrir barnastarfi á sumrin, þar sem boðið er upp á styttri ferðir um svæðið þar sem krakkar fá tækifæri til þess að kynnast nærumhverfi sínu á nýjan hátt. Einnig hefur verið lestrarátak á bókasafninu sem kallast sumarlestur þar sem krakkar eru hvattir til þess að lesa yfir sumarmánuðina, svo eru veitt hvatningarverðlaun að hausti. Einnig er á bókasafninu barnahorn fyrir yngstu kynslóðina, og hvetjum við foreldra eindregið til þess að koma með börnunum á bókasafnið.