Grenndarkynning

Grenndarkynning vegna breytinga á Mánabraut 6 skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Óskað hefur verið eftir heimild til að breyta íbúðarhúsnæði við Mánabraut 6 á Höfn. Breytingin felst í byggingu tveggja nýrra kvista. Þar sem ekki liggur fyrir staðfest deiliskipulag af svæðinu er hagsmunaaðilum gefinn kostur á að tjá sig um fyrirhugaðar framkvæmdir og skal athugasemdum komið til skila á netfangið skipulag@hornafjordur.is eigi síðar en 10. mars 2021.

Nánari upplýsingar og teikningar má finna hér.

Brynja Dögg Ingólfsdóttir

umhverfis- og skipulagsstjóri