Grenndarkynning

Grenndarkynning vegna breytinga á Hrísbraut 3 skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Óskað hefur verið eftir heimild til að byggja við Hrísbraut 3. Um er að ræða sólstofu vestan megin við núverandi hús. Einnig er sótt um leyfi til að saga niður úr gluggaopi á vesturgafli hússins og setja nýja hurð. Þar sem ekki liggur fyrir staðfest deiliskipulag af svæðinu er hagsmunaaðilum gefinn kostur á að tjá sig um fyrirhugaðar framkvæmdir og skal athugasemdum komið til skila á netfangið skipulag@hornafjordur.is eigi síðar en 20. maí 2021.

Nánari upplýsingar og teikningar má finna hér