Grenndarkynning vegna Garðsbrún 2

Óskað hefur verið eftir heimld til að byggja við íbúðarhús að  Garðsbrún 2 um er að ræða um 15m² stofu á neðri hæð.

Einnig er sótt um leyfi til að skipta um glugga og hurðir, og að endurklæða húsið, fjarlægja núverandi plastklæðningu og klæða með litaðri báruklæðningu og lerki viðarklæðningu á afmörkuðum svæðum. Ekki er til staðfest deiliskipulag af svæðinu.

Bæjarráð samþykkti grenndarkynninguna á fundi sínum þann 13. júlí  skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Íbúum gefst kostur á að gera athugasemdir við byggingaráformin og breytingu á húsinu til 11. ágúst 2021.

Teikningar

Athugasemdir skulu berast til Brynju Dögg Ingólfsdóttur umhverfis- og skipulagsstjóra eða á netfangið skipulag@hornafjordur.is eigi síðar en 8. ágúst 2021.