Grenndarkynning vegna sólskála, Sandbakka 9

Óskað hefur verið eftir heimild til að byggja við íbúðarhús að Sandbakka 9. Um er að ræða u.þ.b. 19m² sólstofu vestan megin hússins.

Lóðin er á svæði C2 skv. núgildandi deiliskipulagi miðbæjar. Ekki eru sýndir byggingarreitir á skipulagsuppdrætti.

Íbúum gefst kostur á að gera athugasemdir við byggingaráformin og breytingu á húsinu til 11. ágúst 2021 skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Teikningar  SANDBAKKI-9.vwx

Athugasemdir skulu berast til Brynju Dögg Ingólfsdóttur umhverfis- og skipulagsstjóra eða á netfangið skipulag@hornafjordur.is eigi síðar en 11. ágúst 2021.