Hreinsivika 10. til 24. apríl

3.4.2024

Brotajárn verður sótt í dreifbýli sveitarfélagsins daga 10. til 24. apríl.

Þjónustan er gjaldfrjáls og eru íbúar hvattir til að nýta sér hana.

Þeir sem vilja nýta sér þessa þjónustu eru beðnir um að hafa samband milli kl. 8:00 - 16:00 við Sigfinn í Áhaldahúsinu í síma 470-8027 eða með því að senda tölvupóst á sigfinnur@hornafjordur.is í seinasta lagi þriðjudaginn 9. apríl.

Undir brotajárn falla t.d bílhræ, bárujárn og landbúnaðarvélar.

Verkefnastjóri umhverfismála