23.8.2022 : Afmælishátíð Nýheima

Íbúum og gestum sveitarfélagsins er boðið á 20 ára afmælishátíð Nýheima laugardaginn 27. ágúst frá kl. 13:00-16:00. Glæsileg dagskrá og veitingar í boði. 

23.8.2022 : Kvennakraftur - Womanpower

Langar þig að styrkja tengslanet þitt og taka þátt í skemmtilegu hópastarfi? - Do you want to expand your social network and participate in fun group activities?

15.8.2022 : Bæjarstjórnarfundur 17. ágúst

299. fundur bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Hornafjarðar verður haldinn í Svavarssafni miðvikudaginn 17. ágúst kl. 16:00. Fundinum verður streymt á Youtube.com.

12.8.2022 : Leikskólinn á Höfn - Kynning á deiliskipulagsbreytingu

Mánudaginn 15. ágúst kl. 16:00 mun umhverfis- og skipulagsstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar vera með forkynningu á tillögu að deiliskipulagsbreytingu fyrir leikskólann á Höfn í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

10.8.2022 : Vinningstillagan "Umhverfis Leiðarhöfða"komin í undanúrslit

Vinningstillagan "Umhverfis Leiðarhöfða" er komin í uanúrslit undir "Future Projects" í World Arcitektural Festival 2022, arkitekta hátíð sem verður haldin í Lissabon í lok árs.