Áhyggjur af fjölgun ferðamanna

16.6.2023

Bæjarstjórn Hornafjarðar hefur áhyggjur af öryggismálum íbúa- og ferðamanna í sveitarfélaginu. 

Bæjarstjórn hvetur ríkisvaldið til að huga að grunninnviðum í samfélaginu, t.d. með öflugri löggæslu, til að tryggja öryggi íbúa- og ferðafólks á svæðinu. Bæjarstjórn beinir því til heilbrigðisráðherra að manna heilbrigðis- og viðbragðsþjónustu með þeim hætti að ávallt séu a.m.k. tveir læknar að störfum í sveitarfélaginu á hverjum tíma og að mönnun annarra heilbrigðisstarfsmanna sé einnig tryggð. Þá leggur bæjarstjórn áherslu á að láglendisgæsla Slysavarnarfélagsins Landsbjargar sé til staðar yfir sumarið í Öræfum eða heilbrigðisstarfsmaður á vegum HSU sem sinni bæði íbúum og ferðafólki. Þá hvetur bæjarstjórn umhverfis, orku, og loftlagsráðherra að gera Vatnajökulsþjóðgarð kleift að huga að öryggismálum á sínum vettvangi og að auka við landvörslu í takt við þann mikla fjölda gesta sem sækja þjóðgarðinn heim.

Fjöldi ferðafólks eykst með hverju árinu og er öryggisviðbragð víða um sveitarfélagið í engu samræmi við fjölda fólks sem dvelur hér og fer hér um. Bæjarstjórn hvetur yfirvöld til að finna tafarlaust varanlega lausn til að auka neyðarviðbragð og tryggja öryggi ferðafólks, íbúa og þeirra sem starfa í sveitarfélaginu. Þá lýsir bæjarráð yfir vilja til samtals og samstarfs við Slysavarnarfélagið Landsbjörgu svo tryggja megi áframhaldandi viðveru Láglendisvaktar félagsins í Skaftafelli í sumar.
Bókun almannavarnarnefndar er eftirfarandi:

Bæjarstjórn Hornafjarðar hefur auknar áhyggjur af öryggismálum í Öræfum vegna mikillar fjölgunar ferðamanna sem fara um og dvelja á svæðinu. Eina neyðaraðstoðin á svæðinu að staðaldri er Björgunarsveitin Kári. Hátt í klukkustundar bið er í viðbótarbjargir inn á svæðið ýmist frá Hornafirði eða Kirkjubæjarklaustri í um 100 kílómetra fjarlægð. Neyðarviðbragð sem tiltækt er á þessu svæði er í engu samræmi við þann mikla fjölda ferðamanna sem þar dvelur og fer um. Yfir sumarmánuði er mjög algengt að um 1.000 manns gisti í Skaftafelli yfir nótt og því til viðbótar eru fjölmargir gististaðir í Öræfum.

Nauðsynlegt er að bregðast við síauknu álagi á það viðbragð sem er á svæðinu og gera ráðstafanir til að stytta viðbragðstíma vegna óhappa og slysa. Aukin viðvera lögreglu auk heilbrigðisstarfsmanns í Öræfum er bráðnauðsynleg og væri mikil innspýting á neyðarviðbragði. Láglendisvakt Landsbjargar hefur undanfarin ár sýnt og sannað gildi sitt sem viðbótarviðbragð þegar mesti fjöldi ferðamanna er á svæðinu yfir sumarmánuðina.

Mikilvægt er að finna varanlega lausn til að auka neyðarviðbragð á svæðinu. Mætti þar meðal annars horfa til reynslu og útfærslu sem er í Þjóðgarðinum á Þingvöllum varðandi heilbrigðisstarfsmann.