Bráðabirgðabrú yfir Steinavötn verður opnuð á hádegi á morgun

3.10.2017

Samkvæmt vef Vegagerðarinnar http://www.vegagerdin.is/ kemur fram að bráðabirgðabrúin yfir Steinavötn á suðausturlandi verður opnuð fyrir allri umferð á hádegi á morgun miðvikudaginn 4. október.

Starfsmenn Vegagerðarinnar hafa unnið af miklum þrótti frá því að gamla brúin skemmdist í vatnavöxtum í síðustu viku.

Báðir brúarvinnuflokkar Vegagerðarinnar og fjöldi annarra starfsmanna stofnunarinnar hafa lagt mikið á sig til að ljúka þessu verki á svo skömmum tíma. 

Umferð gangandi vegfarenda hefur verið heimiluð yfir gömlu brúna. Skipulagðar ferðir eru á milli Hala og Hrollaugsstaða milli kl. 08:00 til 20:00. Farið er frá Hala á heila tímanum og á hálfa tímanum frá Hrollaugsstöðum.