Framlagning kjörskrár vegna forsetakosninga

20.6.2016

Kjörskrá mun liggja frammi almenningi til sýnis á bæjarskrifstofunum í Ráðhúsinu til og með föstudagsins 24. júní á almennum skrifstofutíma.

Kjörskrá mun liggja frammi almenningi til sýnis á bæjarskrifstofunum í Ráðhúsinu til og með föstudagsins 24. júní á almennum skrifstofutíma. Kjörskráin miðast við skráð heimilisfang hjá þjóðskrá 4. júní 2016. Athugasemidr við kjörskrána berist bæjarstjórn Hornafjarðar.

Í sveitarfélaginu Hornafirði eru fimm kjörstaðir í Hofgarði, Hrollaugstöðum, Holti, Mánagarði og Heppuskóla.

Í kjörstjórn eru Vignir Júlíusson, Zophonías Torfason og Reynir Gunnarsson.

Atkvæðagreiðsla utankjörfundar er hafin, kjósanda sem ekki getur kosið á kjördag er heimilt að greiða atkvæði utan kjörfundar.

Hægt er að kjósa hjá öllum sýslumönnum á landinu. Atkvæðagreiðsla á erlendri grundu er líka hafin á vegum utanríkisráðuneytisins.

Sjá nánar á kosningavef innanríkisráðuneytisins.