Fyrsti stúdentinn frá FAS til að hljóta doktorsgráðu

8.12.2016

Þann 22. nóvember síðastliðinn varði Védís Helga Eiríksdóttir doktorsritgerð sína í lýðheilsuvísindum sem ber heitið:

Heilsa barnshafandi kvenna og fæðingaútkomur á tímum mikilla efnahagsþrenginga á Íslandi – Maternal health indicators during pregnancy and birth outcomes during times of great macroeconomic instability: the case of Iceland.

Markmið doktorsverkefnisins var að rannsaka möguleg áhrif íslenska efnahagshrunsins 2008 á heilsu barnshafandi kvenna og fæðingarútkomur. Ennfremur að kanna að hversu miklu leyti efnahagsástandið á Íslandi skýrði mögulegar heilsufarsbreytingar hjá ófrískum konum og afkvæmum þeirra.

Védís er Hornfirðingur og eru foreldrar hennar Eiríkur Sigurðsson og Vilborg Gunnlaugsdóttir.

Védís útskrifaðist frá FAS vorið 1998 og er hún fyrsti stúdentinn frá skólanum til að hljóta doktorsgráðu.


 Á heimasíðu FAS, fas.is kemur fram að skólinn er einstaklega stoltur af Védísi og er henni óskað innilega til hamingju með áfangann. Sveitarfélagið Hornafjörður tekur undir árnaðaróskir til Védísar og fagnar þessum áfanga hennar og skólans.