Listagjöf um allt land

17.12.2020

Listahátíð í Reykjavík er á ferð um landið og býður Hornfirðinum upp á Listagjöf í heimabyggð!

Íbúar geta pantað Listagjöf fyrir ástvini á sérhönnuðu vefsvæði listagjof.listahatid.is. Gjöfin er án endurgjalds en takmarkast við eina pöntun á mann. Listagjafirnar verða afhentar helgina 19. og 20. desember.

Hver listagjöf er um það bil fimm til tíu mínútna flutningur á tónlist, dansi eða ljóðalestri frá mörgu af okkar allra besta listafólki. Sá eða sú sem bókar gjöfina sér til þess að viðtakandinn verði heima þegar gjöfin verður afhent og tekur að auki á móti listamanninum. Flutningurinn fer svo fram í öruggri covid-fjarlægð frá þiggjanda gjafarinnar, utandyra ef þess er nokkur kostur eða annars staðar þar sem hægt er að tryggja örugga fjarlægð.

Ath! 

Ef aðilar treysta sér ekki til að taka á móti listafólki heim að dyrum er í boði að panta listagjafir sem persónulegt myndsímtal.

Hornfirðingar eru hvattir til að nýta sér þetta flotta verkefni og bjóða ástvini upp á Listagjöf!