Malbikun á Ránarslóð

28.6.2023

Eins og glöggir íbúar Hafnar hafa tekið eftir þá standa malbiksframkvæmdir yfir. Í fyrramálið stendur til að malbika Ránarslóð ef veður leyfir. 

Íbúar á Ránarslóð eru beðnir að fjarlægja bifreiðar eða aðra lausamuni af götunni til þess að framkvæmdir gangi sem allra best. 

Beðist er velvirðingar á umferðartruflunum á meðan malbiksframkvæmdir standa yfir.