Örnefnanámskeið

18.10.2021

Landmælingar Íslands fara um landið og halda námskeið í staðsetningu örnefna og verða á Höfn 20. október. 

Farið er yfir hvernig best sé staðið að skráningu, hvort sem skráð er eftir, Hvar er?, með ítarlegri skráningaraðgangi eða með því að færa örnefni á útprentaðar myndir. Námskeiðið tekur um tvær klukkustundir og kostar ekkert.

Skráning á námskeið er hér

Nánari upplýsingar má finna á fésbókarsíðu verkefnisins.

Frekari upplýsingar um tíma- og staðsetningu kemur þegar vitað er um fjölda þátttakenda.