• 1_1774362076327

Stefnan Hornafjörður, náttúrulega! uppfærð fyrir tímabilið 2026-2030

24.3.2026

Hornafjörður, náttúrulega! er stefna á vegum Sveitarfélagsins Hornafjörður sem felur í sér innleiðingu á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna inn í starf stofnana sveitarfélagsins.

Stefnan var fyrst innleidd árið 2021 en á síðasta ári, 2025, var hún endurskoðuð og uppfærslan samþykkt í bæjarráði 12. febrúar síðastliðinn. Nýheimar þekkingarsetur hélt utan um vinnuna, en markmiðið með endurskoðuninni var að skerpa áherslurnar og gera Hornafjörð, náttúrulega! að markvissara stjórntæki fyrir sveitarfélagið.

Ein af meginbreytingum í uppfærðri stefnu er að stoðum hennar hefur verið fækkað úr fjórum í þrjár. Með því er leitast við að einfalda framsetninguna og tryggja skýrari forgangsröðun. Stoðir stefnunnar, eftir endurskoðun, eru nú umhverfi, fólkið og þjónusta, sem mynda grunn að allri stefnumótun sveitarfélagsins.

Umhverfi snýr að sjálfbærni, loftslagsmálum og vernd náttúrunnar. Þar er lögð áhersla á ábyrgari auðlindanýtingu, eflingu hringrásarhagkerfisins og að draga úr úrgangi. Jafnframt er sett fram skýr stefna um að sveitarfélagið stefni að kolefnishlutleysi í eigin starfsemi fyrir árið 2038.

Fólkið tekur til velferðar íbúa og þeirra samfélagslegu innviða sem styðja við heilbrigði, jöfnuð og gott mannlíf. Áhersla er lögð á inngildingu, fjölmenningu og að allir íbúar hafi jöfn tækifæri til þátttöku í samfélaginu. Þá er einnig horft til þess að efla gæði í skóla-, frístunda- og velferðarþjónustu.

Þjónusta fjallar um hvernig sveitarfélagið sinnir hlutverki sínu, bæði gagnvart íbúum og öðrum hagaðilum. Þar er lögð áhersla á faglega, skilvirka og aðgengilega stjórnsýslu, aukna upplýsingagjöf, gagnsæi og áframhaldandi stafræna þróun þjónustunnar.

Framtíðarsýn sveitarfélagsins er áfram hin sama: Sveitarfélagið Hornafjörður á að vera eftirsóknarverður og fjölskylduvænn búsetukostur, þar sem lífsgæði eru í fyrirrúmi, þjónusta er framúrskarandi og nýsköpun blómstrar í sátt við náttúru og samfélag. Markmið sveitarfélagsins er að stefnan styrki sameiginlega sýn íbúa, starfsfólks og stjórnenda um framtíð sveitarfélagsins. Unnið er að því að uppfæra upplýsingar á heimasíðu sveitarfélagsins og á samfélagsmiðlum, en hér fyrir neðan er hlekkur á stefnuna í uppfærðri mynd.

Hlekkur á glærur!