Tilnefningar til Menntaverðlaun Suðurlands 2021

10.12.2021

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga óska eftir tilnefningum til Menntaverðlauna Suðurlands 2021.

Allir þeir sem tengjast skóla- og/eða menntunarstarfi með einhverjum hætti, s.s. sveitarfélög, skólanefndir, kennarar, starfsfólk skóla og annað áhugafólk um menntun og skólastarf, hafa rétt til þess að tilnefna til verðlaunanna. Tilnefningunni verður að fylgja ítarlegur rökstuðningur.

Allir þeir sem koma að skóla- eða menntunarstarfi með einhverjum hætti geta hlotið verðlaunin, t.a.m. leikskólar, grunnskólar, framhaldssskólar, símenntunarstöðvar, háskólastofnanir, kennarar, einstaklingar eða hópar, skólaskrifstofur, sveitarfélag/skólanefndir og foreldrafélög.

Frestur til tilnefninga er til miðnættis fimmtudaginn 6. janúar 2022 og þær skal sena á netfangið menntaverdlaun@sudurland.is. Veitt verður viðurkenning og peningaverðlaun. Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu SASS: sass.is.

Menntaverdlaun