Umsóknir um styrki í Atvinnu-og rannsóknarsjóð

8.12.2016

Atvinnumálanefnd Hornafjarðar auglýsir eftir umsóknum í atvinnu- og rannsóknarsjóð Sveitarfélagsins Hornafjarðar.

Sjóðurinn veitir styrki til verkefna sem efla byggð eða atvinnu í sveitarfélaginu án þess að skekkja samkeppnisstöðu starfandi fyrirtækja á svæðinu. Sjóðnum er ætlað að veita styrki til atvinnuþróunar, nýsköpunar og rannsókna.

Þeir sem hafa lögheimili í sveitarfélaginu og hafa þar fasta búsetu geta sótt um styrki til sjóðsins. Atvinnumálanefnd Hornafjarðar hefur umsjón með sjóðnum.

Nánari upplýsingar eru veittar í ráðhúsi, Hafnarbraut 27 Höfn eða á heimasíðu sveitarfélagsins, www.hornafjordur.is undir reglur og samþykktir.

Umsóknarfrestur er til 9. janúar 2017. Umsóknareyðublöð er að finna á heimasíðu sveitarfélagsins, undir stjórnsýsla.

Árdís Erna Halldórsdóttir

Atvinnu- og ferðamálafulltrúi