10.5.2023 : Hafðu áhrif á þína heimabyggð

Vilt þú hafa áhrif á umhverfis- og skipulagsmál í þinni heimabyggð? Nú er tækifærið til að kynna sér um hvað verður fjallað við endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins og senda inn ábendingar sem varða það verkefni. 

9.5.2023 : Skipulagsgátt

Skipulagsstofnun hefur nú tekið í gagnið nýjan vef sem kölluð er skipulagsgátt og með henni er bætt til muna gegnsæi og aðgengi að upplýsingum um skipulagsmál og einstakar framkvæmdir.

9.5.2023 : Íbúakosningar 19. Júní – 10. Júlí í Sveitarfélaginu Hornafirði - Skráning námsmanna á Norðurlöndunum á kjörskrá

Þjóðskrá auglýsir að námsmenn þurfi að skrá sig á kjörskrá fyrir föstudaginn 12. maí. 

8.5.2023 : Bæjarstjórnarfundur 10. maí

310. fundur bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Hornafjarðar verður haldinn í ráðhúsi,
miðvikudaginn 10. maí 2023 og hefst kl. 16:00.

4.5.2023 : Fundur með forsætisráðherra í Vöruhúsinu 5. maí kl. 10:30 um sjálfbæra þróun á Íslandi

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra býður til opinna samráðsfunda um landið um sjálfbæra þróun á Íslandi. Á morgun 5. maí mætir hún í Vöruhúsið á Höfn kl. 10:30 - 12:00 og óskar eftir því að fá sem flesta Hornfirðinga til spjalls og ráðagerða. Fjallað verður um stöðu sjálfbærni, helstu áskoranir, tækifæri og valkosti til framfara en vinna stendur yfir við mótun stefnu Íslands um sjálfbæra þróun. Þetta er einstakt tækifæri fyrir Hornfirðinga til að taka þátt í að móta framtíð Íslands. Notum tækifærið og mætum. Skráning á fundinn fer fram á www.sjalfbaertisland.is en gott er að vita nokkurn veginn hversu margir mæta. Allir velkomnir.

Sveitarfélagið Hornafjörður

3.5.2023 : Tilkynning um íbúakosningu

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti þann 27. apríl að framkvæma íbúakosningu um samþykkt aðal- og deiliskipulag um þéttingu byggðar, Innbæ.

3.5.2023 : Upptaka af foreldrafundi Heimilis og skóla

Heimili og skóli, landssamtök foreldra stóðu fyrir foreldrafundi í Nýheimum í gær 2. maí og er nú hægt að nálgast upptöku af fundinum.

3.5.2023 : Auglýst eftir umsóknum í vinnuskólann

Ungmenni fædd 2007-2010 geta sótt um vinnu í vinnuskólanum sem hefst 5. júní.

Hornafjörður

3.5.2023 : Sveitarfélagið Hornafjörður auglýsir eftir áhugasömum einstaklingum í íbúaráð

Bæjarráð hvetur íbúa í dreifbýli til að gefa kost á sér til þess að starfa í íbúaráði umsóknarfrestur er til 14. maí. 

Síða 2 af 3