30 km hámarkshraði í íbúðagötum

24.11.2021

Sveitarfélagið Hornafjörður vekur athygli íbúa á því að nú er unnið að uppsetningu skilta sem takmarka hámarkshraða í íbúðagötum í samræmi við umferðaöryggisáætlun sveitarfélagsins.

Umferðaröryggisáætlunina má finna hér þar sem upplýsingar um hámarkshraða koma fram.

Markmiðið með breytingunni er að auka öryggi allra bæjarbúa og gesta, gera gangandi og hjólandi umferð hærra undir höfði og fækka óhöppum og slysum í umferðinni. Sýnt hefur verið fram á að hraði ökutækja hefur mikil áhrif á annars vegar fjölda slysa og hins vegar alvarleika slysa.

Meðfylgjandi eru kort úr umferðaröryggisáætlun sveitarfélagsins sem sýnir með gulu þær götur sem verða með 30 km hámarkshraða.

Uppsetning skiltanna tekur einhverja daga og biðjum við íbúa að sýna okkur biðlund á meðan.

Vakin er athygli á því að notast er við tvennskonar hraðatakmörkunarskilti. Hraðmerking 30 km svæða er merkt með ferkönntuðu merki og gildir þá hraðatakmörkun á öllum götum innan svæðisins. Þar sem notuð eru hringlaga merki, sérstök takmörkun hámarkshraða, þá gildir það í akstursstefnu á þeim vegi sem það er sett við eða þar til önnur hraðamörk eru gefin til kynna með nýju merki. Fyrri myndin sýnir götur innan Hafnar, seinni myndin sýnir Nesjahverfið. 

30-gotur-hofn30-gotur-Nesjahverfi